Garner og Lopez heimsóttu Affleck á afmælisdaginn

Poppkúltúr | 17. ágúst 2024

Garner og Lopez heimsóttu Affleck á afmælisdaginn

Leikkonan Jennifer Garner kíkti í heimsókn til fyrrverandi eiginmanns síns, leikarans og leikstjórans Ben Affleck, í tilefni af 52 ára afmæli hans á fimmtudag. Fyrrverandi leikarahjónin, sem eiga þrjú börn á táningsaldri, skildu árið 2018 eftir 13 ára hjónaband en hafa haldið góðum vinskap síðan sambandinu lauk.

Garner og Lopez heimsóttu Affleck á afmælisdaginn

Poppkúltúr | 17. ágúst 2024

Jennifer Lopez tjáði sig ekkert um Ben Affleck í tilefni …
Jennifer Lopez tjáði sig ekkert um Ben Affleck í tilefni af afmælisdegi hans. Samsett mynd

Leik­kon­an Jenni­fer Garner kíkti í heim­sókn til fyrr­ver­andi eig­in­manns síns, leik­ar­ans og leik­stjór­ans Ben Aff­leck, í til­efni af 52 ára af­mæli hans á fimmtu­dag. Fyrr­ver­andi leik­ara­hjón­in, sem eiga þrjú börn á tán­ings­aldri, skildu árið 2018 eft­ir 13 ára hjóna­band en hafa haldið góðum vin­skap síðan sam­band­inu lauk.

Garner var mynduð, án barn­anna, fyr­ir utan hús­næði sem leik­ar­inn hef­ur á leigu í Brentwood í Kali­forn­íu.

Aff­leck, sem er sagður hafa sótt um leyfi til skilnaðar frá leik- og söng­kon­unni Jenni­fer Lopez, festi á dög­un­um kaup á nýrri glæsi­villu í Pacific Palisa­des-hverf­inu og er á fullu að und­ir­búa flutn­ing­inn á nýja heim­ilið.

Garner var þó ekki sú eina sem heim­sótti Aff­leck í til­efni af af­mæl­is­deg­in­um en seinna um dag­inn sást Lopez yf­ir­gefa heim­ili leik­ar­ans. Heim­sókn henn­ar kom mörg­um að óvör­um enda hafa hjón­in ekki sést sam­an síðan í út­skrift­ar­veislu elstu dótt­ur Aff­leck í maílok.

Lopez tjáði sig ekk­ert um leik­ar­ann í til­efni af af­mæli hans á sam­fé­lags­miðlasíðum sín­um en birti þess í stað myndaseríu af sjálfri sér í glæsi­leg­um Dior-kjól sem hún klædd­ist í af­mæli sínu fyr­ir ör­fá­um vik­um.

Leik- og söng­kon­an fagnaði 55 ára af­mæli sínu með glæsi­legri þriggja daga veislu sem endaði á dansi­balli í anda Bridgert­on-þáttaserí­unn­ar. Aff­leck var ekki meðal boðsgesta.

View this post on In­sta­gram

A post shared by Jenni­fer Lopez (@jlo)

mbl.is