Svona viðhalda Swift og Kelce ástarloganum

Poppkúltúr | 20. ágúst 2024

Svona viðhalda Swift og Kelce ástarloganum

Tónlistarkonan Taylor Swift og kærasti hennar, NFL-leikmaðurinn Travis Kelce, hafa lítið sést saman að undanförnu vegna annasamrar og krefjandi dagskrár þeirra beggja. Parið, sem staðfesti samband sitt í september, er þó duglegt að viðhalda ástinni með öðrum leiðum.

Svona viðhalda Swift og Kelce ástarloganum

Poppkúltúr | 20. ágúst 2024

Taylor Swift og Travis Kelce féllust í faðma við lok …
Taylor Swift og Travis Kelce féllust í faðma við lok úrslitaleiks Ofurskálarinnar. AFP/Ezra Shaw

Tón­list­ar­kon­an Tayl­or Swift og kær­asti henn­ar, NFL-leikmaður­inn Tra­vis Kelce, hafa lítið sést sam­an að und­an­förnu vegna anna­samr­ar og krefj­andi dag­skrár þeirra beggja. Parið, sem staðfesti sam­band sitt í sept­em­ber, er þó dug­legt að viðhalda ást­inni með öðrum leiðum.

Ónefnd­ur vin­ur pars­ins seg­ir þau for­gangsraða mál­um og að sam­band þeirra sé á toppn­um hjá báðum, þrátt fyr­ir mikla fjar­veru og tíma­mun. Hann seg­ir þau leggja áherslu á sam­skipti í gegn­um skila­boð og sím­töl, en um þess­ar mund­ir aðskil­ur Atlants­hafið parið þar sem Kelce er stadd­ur í æf­inga­búðum með liðsfé­lög­um sín­um úr Kans­as City Chi­efs í Banda­ríkj­un­um og Swift er á tón­leika­ferðalagi um Evr­ópu.

Vin­ur pars­ins greindi einnig frá því að stjörnu­leikmaður­inn elski að koma Swift á óvart með því að senda henni blóm og gjaf­ir, hvar sem hún er stödd í heim­in­um. „Sam­band þeirra er ólíkt öllu sem þau hafa upp­lifað áður.“

Allt fyr­ir ást­ina

Eins og áður sagði op­in­beraði parið sam­band sitt í sept­em­ber á síðasta ári þegar söng­kon­an sást hvetja Kelce til dáða á Arrowhead-leik­vangn­um í Kans­as City í Banda­ríkj­un­um. Síðan þá hef­ur hún verið dug­leg að mæta á leiki í NFL-deild­inni og lét sig að sjálf­sögðu ekki vanta á úr­slita­leik­inn í Of­ur­skál­inni þar sem Kelce og liðsfé­lag­ar hans í Kans­as City Chi­efs nældu sér í meist­ara­titil­inn.

Kelce hef­ur einnig sést á ótal tón­leik­um stór­stjörn­unn­ar víða um heim.

mbl.is