Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir, utanríkisráðherra, og lögmaðurinn Hjalti Sigvaldason Mogensen fögnuðu sjö ára ullarbrúðkaupi í gær. Brúðkaupið fór fram í Akraneskirkju á sólríkum degi, 19. ágúst 2017.

„Jarðtengingin mín. Minn, bestur í blíðu og stríðu 19.08.2017,“ skrifaði Þórdís í einlægri færslu á Instagram.
„Það er ómetanlegt að vera vel giftur í kosningabaráttu eins og öðrum baráttum sem fólk heyjar,“ sagði ráðherrann í samtali við mbl.is rétt eftir að þau gengu í hjónaband árið 2017 en þá var hún í miðri kosningabaráttu. Í viðtalinu sagði hún frá því að það hefði staðið upp úr að geta fagnað með fólkinu sínu á þessum degi.
Smartland óskar hjónunum til hamingju með ástina!