Helga Þóra fagnaði afmælinu í Köben með Brynjari

Á ferðalagi | 22. ágúst 2024

Helga Þóra fagnaði afmælinu í Köben með Brynjari

Helga Þóra Bjarnadóttir, dóttir Bjarna Benediktssonar forsætisráðherra Íslands, fagnaði nýverið afmæli sínu ásamt kærasta sínum, tónlistarmanninum Brynjari Barkarsyni, í Kaupmannahöfn. 

Helga Þóra fagnaði afmælinu í Köben með Brynjari

Á ferðalagi | 22. ágúst 2024

Helga Þóra Bjarnadóttir og Brynjar Barkarson skelltu sér til Köben!
Helga Þóra Bjarnadóttir og Brynjar Barkarson skelltu sér til Köben! Samsett mynd

Helga Þóra Bjarna­dótt­ir, dótt­ir Bjarna Bene­dikts­son­ar for­sæt­is­ráðherra Íslands, fagnaði ný­verið af­mæli sínu ásamt kær­asta sín­um, tón­list­ar­mann­in­um Brynj­ari Bark­ar­syni, í Kaup­manna­höfn. 

Smart­land greindi frá því í vor að Helga Þóra og Brynj­ar væru nýtt par, en þau op­in­beruðu sam­band sitt í mars. 

Parið ákvað að fagna af­mæli Helgu Þóru með stæl og héldu upp á af­mæl­is­helg­ina í Kaup­manna­höfn. Þar nutu þau sín í botn, en Helga Þóra birti TikT­ok-mynd­band frá helg­inni þar sem var greini­lega mikið af góðum mat og ljúf­um stund­um. 

Í mynd­band­inu sjást þau einnig fara í sigl­ingu, á fata­markað, mat­ar­markað og svo fékk Helga Þóra að sjálf­sögðu af­mæl­is­köku með stjörnu­ljósi í til­efni dags­ins. 

mbl.is