„Og svo varð maður alltíeinu afi“

Frægar fjölskyldur | 22. ágúst 2024

„Og svo varð maður alltíeinu afi“

Bakarinn Jóhann Felixson, eða Jói Fel eins og hann er jafnan kallaður, er orðinn afi. Dóttir Jóa Fel, Rebekka Rún Jóhannesdóttir, og sambýlismaður hennar Ásgeir Kári Ásgeirsson, eignuðust dóttur þann 17. ágúst síðastliðinn. 

„Og svo varð maður alltíeinu afi“

Frægar fjölskyldur | 22. ágúst 2024

Jói Fel og unnusta hans, Kristín Eva Sveinsdóttir.
Jói Fel og unnusta hans, Kristín Eva Sveinsdóttir. mbl.is/Arnþór Birkisson

Bak­ar­inn Jó­hann Felix­son, eða Jói Fel eins og hann er jafn­an kallaður, er orðinn afi. Dótt­ir Jóa Fel, Re­bekka Rún Jó­hann­es­dótt­ir, og sam­býl­ismaður henn­ar Ásgeir Kári Ásgeirs­son, eignuðust dótt­ur þann 17. ág­úst síðastliðinn. 

Bak­ar­inn Jó­hann Felix­son, eða Jói Fel eins og hann er jafn­an kallaður, er orðinn afi. Dótt­ir Jóa Fel, Re­bekka Rún Jó­hann­es­dótt­ir, og sam­býl­ismaður henn­ar Ásgeir Kári Ásgeirs­son, eignuðust dótt­ur þann 17. ág­úst síðastliðinn. 

Jói Fel til­kynnti gleðifregn­irn­ar í færslu á In­sta­gram þar sem hann birti fal­lega mynd af sér með barna­barn­inu. „AFI. Og svo varð maður all­tíeinu afi. Því­lík gleði og ást að fá að halda á afa stelp­unni minni. Fædd 17. ág­úst,“ skrifaði hann í færsl­unni. 

Ný­trú­lofaður og orðinn afi

Jói Fel sagði frá því að hann væri að verða afi í fe­brú­ar síðastliðnum, en þá skrifaði hann: „Þá er stærsta kak­an sem ég er bú­inn að bíða lengi eft­ir kom­in í ofn­inn. Haldiði ekki að ég sé að verða afi fljót­lega Elsku besta Re­bekka mín og Kári minn.“

Það hef­ur verið nóg um að vera hjá bak­ar­an­um að und­an­förnu, en í síðustu viku bað hann kær­ustu sinn­ar, Krist­ín­ar Evu Sveins­dótt­ur, á Miami-strönd­inni í Flórída í Banda­ríkj­un­um, og hún sagði já!

Fjöl­skyldu­vef­ur mbl.is ósk­ar þeim inni­lega til ham­ingju!

mbl.is