Þetta segja forystumenn í flokkunum um sáttmálann:

Borgarlínan | 23. ágúst 2024

Tveir flokkar af átta neikvæðir í garð sáttmálans

Yfirgnæfandi meirihluti forystumanna stjórnmálaflokka á Alþingi eru jákvæðir í garð uppfærðs samgöngusáttmála sem var undirritaður í gær.

Tveir flokkar af átta neikvæðir í garð sáttmálans

Borgarlínan | 23. ágúst 2024

Sex flokkar eru jákvæðir í garð sáttmálans.
Sex flokkar eru jákvæðir í garð sáttmálans. Sigurður Bogi Sævarsson

Yf­ir­gnæf­andi meiri­hluti for­ystu­manna stjórn­mála­flokka á Alþingi eru já­kvæðir í garð upp­færðs sam­göngusátt­mála sem var und­ir­ritaður í gær.

Yf­ir­gnæf­andi meiri­hluti for­ystu­manna stjórn­mála­flokka á Alþingi eru já­kvæðir í garð upp­færðs sam­göngusátt­mála sem var und­ir­ritaður í gær.

Aðeins tveir voru nei­kvæðir í garð sátt­mál­ans.

mbl.is hef­ur rætt við for­ystu­menn og þing­menn í öll­um flokk­un­um á Alþingi frá því að sátt­mál­inn var und­ir­ritaður á miðviku­dag. 

Inga og Bergþór nei­kvæð í garð sátt­mál­ans

Fram hef­ur komið í máli Ingu Sæ­land, for­manns Flokks fólks­ins, í sam­tali við mbl.is að hún væri ekki sátt við sátt­mál­ann

„Þetta er bara kosn­ingalof­orð. Þeir eru byrjaðir að lofa millj­örðum. Talandi um 16 millj­arða á ári. Rík­is­sjóður er rek­inn með gríðarleg­um halla eins og við vit­um og við erum að glíma hér við verstu efna­hags­stjórn í heimi,“ sagði Inga Sæ­land í sam­tali við mbl.is.

Inga Sæland, formaður Flokks fólksins.
Inga Sæ­land, formaður Flokks fólks­ins. Eggert Jó­hann­es­son

Bergþór Ólason, þingmaður Miðflokks­ins, kvaðst hvorki vera sátt­ur við sam­göngusátt­mál­ann né út­gjöld rík­is­sjóðs í tengsl­um við hann.

„Við telj­um að þessi áhersla á að þrengja að al­mennri um­ferð fjöl­skyldu­bíls­ins sé úr öllu hófi geng­in. Við höf­um séð á þessu fyrstu fimm árum [eft­ir fyrstu und­ir­rit­un] að það er þrengt að og tafið fyr­ir stofn­brautafram­kvæmd­un­um á meðan reynt er að ýta borg­ar­línu­hlut­an­um hraðar áfram held­ur en skyn­sam­legt get­ur tal­ist,“ sagði Bergþór Ólason í sam­tali við mbl.is.

Rík­is­stjórn­in sátt

Eðli máls­ins sam­kvæmt eru for­ystu­menn í rík­is­stjórn­inni sátt­ir með und­ir­rit­un sátt­mál­ans.

„Það er svo langt frá því að vera sjálfsagt að ríki og sveit­ar­fé­lög geti náð sér sam­an um svona lang­tíma­sýn í jafn miklu grund­vall­ar­máli eins og sam­göngu­mál fyr­ir allt höfuðborg­ar­svæðið til 2040 eru. Það er ekki hægt að kom­ast að ann­arri niður­stöðu en að þetta sé gíf­ur­lega mik­ill áfangi,“ sagði Bjarni Bene­dikts­son, formaður Sjálf­stæðis­flokks­ins og for­sæt­is­ráðherra, í sam­tali við mbl.is.

Bjarni Benediktsson forsætisráðherra á kynningarfundi um uppfærðan samgöngusáttmála höfuðborgarsvæðisins í …
Bjarni Bene­dikts­son for­sæt­is­ráðherra á kynn­ing­ar­fundi um upp­færðan sam­göngusátt­mála höfuðborg­ar­svæðis­ins í Saln­um í Kópa­vogi. mbl.is/​Eyþór

Svandís Svavars­dótt­ir, innviðaráðherra og odd­viti Vinstri grænna í Reykja­vík suður, var ánægð með und­ir­rit­un­ina er mbl.is náði af henni tali.

„Þetta er nátt­úru­lega bara mjög dýr­mæt­ur og mik­il­væg­ur áfangi fyr­ir sam­göng­ur hér á höfuðborg­ar­svæðinu en líka bara fyr­ir framtíðar­sýn upp­bygg­ing­ar sam­fé­lags­ins,“ sagði hún.

Sig­urður Ingi Jó­hanns­son, fjár­mála- og efna­hags­ráðherra og formaður Fram­sókn­ar, var ánægður eft­ir und­ir­rit­un­ina en sagði að hon­um þætti eðli­legt að sátt­mál­inn yrði tek­inn til end­ur­mót­un­ar með reglu­bundn­um hætti og nefndi til dæm­is á fimm ára fresti.

„Mér kæmi ekk­ert á óvart ef í þeim fasa þá muni jafn­vel ein­hver verk­efni sem við erum búin að móta núna jafn­vel breyt­ast í að stækka eða jafn­vel að það bæt­ist við verk­efni.“

Sam­fylk­ing­in ánægð

Stjórn­ar­and­stöðuflokk­arn­ir Sam­fylk­ing, Viðreisn og Pírat­ar lýstu yfir mik­illi ánægju með sátt­mál­ann. Á sveit­ar­stjórn­arstig­inu mynda þessi þrír flokk­ar meiri­hluta í borg­ar­stjórn ásamt Fram­sókn.

Þór­unn Svein­bjarn­ar­dótt­ir, vara­formaður þing­flokks Sam­fylk­ing­ar­inn­ar, sagði flokk­inn fagna því að loks­ins væri búið að upp­færa sam­göngusátt­mál­ann.

„Í mín­um huga skipt­ir mjög miklu máli að það sé samstaða á milli allra sveit­ar­fé­laga á höfuðborg­ar­svæðinu um þessa upp­færslu og ekki síður að ríkið skuld­bindi sig til að stíga sterk­ar inn meðal ann­ars með þátt­töku í rekstri al­menn­ings­sam­gangna. Það er krafa sem að hef­ur verið uppi mjög lengi og mik­il­vægt að svara,“ sagði Þór­unn í sam­tali við mbl.is.

Þórunn Sveinbjarnardóttir, þingmaður Samfylkingarinnar.
Þór­unn Svein­bjarn­ar­dótt­ir, þingmaður Sam­fylk­ing­ar­inn­ar. mbl.is/​Eggert Jó­hann­es­son

Feg­urð fólg­in í þver­póli­tískri sátt

Þor­gerður Katrín Gunn­ars­dótt­ir, formaður Viðreisn­ar, sagði að Viðreisn tæki vel í upp­færðan sam­göngusátt­mála og að feg­urð væri fólg­in í því að hann hafi verið gerður á þver­póli­tísk­um grunni.

„Það var löngu kom­inn tími á sam­göngu­um­bæt­ur og upp­bygg­ingu á höfuðborg­ar­svæðinu,“ sagði Þor­gerður í sam­tali við mbl.is.

Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir, formaður Viðreisnar.
Þor­gerður Katrín Gunn­ars­dótt­ir, formaður Viðreisn­ar. mbl.is/​Arnþór

Andrés Ingi Jóns­son, þingmaður Pírata, sagði að flokk­ur­inn væri ánægður með að upp­færður sátt­máli væri kom­inn í höfn.

„Mér finnst kannski sér­stak­lega muna um sam­göng­urn­ar sem eru þarna. Borg­ar­lín­an mun stökk­breyta því hvernig al­menn­ings­sam­göng­ur virka og göngu- og hjóla­stíg­ar sem við sjá­um strax hvað þeir geta breytt miklu hvaða varðar sam­göngu­mynstrið á svæðinu,“ sagði hann í sam­tali við mbl.is.

mbl.is