Heimsækir borg þar sem hnífaárás var gerð

Ríki íslams | 26. ágúst 2024

Olaf Scholz, kanslari Þýskalands, heimsækir í dag borgina Solingen þar sem sýrlenskur maður sem talinn er tengjast Ríki íslams drap þrjár manneskjur og særði átta til viðbótar á föstudag.

Olaf Scholz, kanslari Þýskalands.
Olaf Scholz, kanslari Þýskalands. AFP/Hennings Kaiser

Olaf Scholz, kanslari Þýskalands, heimsækir í dag borgina Solingen þar sem sýrlenskur maður sem talinn er tengjast Ríki íslams drap þrjár manneskjur og særði átta til viðbótar á föstudag.

Olaf Scholz, kanslari Þýskalands, heimsækir í dag borgina Solingen þar sem sýrlenskur maður sem talinn er tengjast Ríki íslams drap þrjár manneskjur og særði átta til viðbótar á föstudag.

Árásin hefur vakið upp umræðu um innflytjendamál í Þýskalandi á nýjan leik.

Eftir að árásarmaðurinn hafði verið einn dag á flótta gaf hann sig fram við yfirvöld og játaði verknaðinn, að sögn lögreglunnar.

Kona virðir fyrir sér blómsveiga sem voru lagðir niður þar …
Kona virðir fyrir sér blómsveiga sem voru lagðir niður þar sem árásin var gerð. AFP/Ina Fassbender
mbl.is