Er ofurkonujakkinn dauður?

Framakonur | 29. ágúst 2024

Er ofurkonujakkinn dauður?

Ein vinsælasta flík íslenskra kvenna síðustu árin hefur sennilega verið „ofurkonujakkinn“ góði, Logo Blazer frá Polo Ralph Lauren. Upphaflega var hann hvað vinsælastur á meðal kvenna úr atvinnulífinu og fékk þess vegna þetta nafn.

Er ofurkonujakkinn dauður?

Framakonur | 29. ágúst 2024

Guðlaug Rakel Guðjóns­dótt­ir, Inga Tinna Sigurðardóttir og Sólveig R. Guðmundsdóttir …
Guðlaug Rakel Guðjóns­dótt­ir, Inga Tinna Sigurðardóttir og Sólveig R. Guðmundsdóttir eru hrifnar af jakkanum.

Ein vin­sæl­asta flík ís­lenskra kvenna síðustu árin hef­ur senni­lega verið „of­ur­konujakk­inn“ góði, Logo Blazer frá Polo Ralph Lauren. Upp­haf­lega var hann hvað vin­sæl­ast­ur á meðal kvenna úr at­vinnu­líf­inu og fékk þess vegna þetta nafn.

Ein vin­sæl­asta flík ís­lenskra kvenna síðustu árin hef­ur senni­lega verið „of­ur­konujakk­inn“ góði, Logo Blazer frá Polo Ralph Lauren. Upp­haf­lega var hann hvað vin­sæl­ast­ur á meðal kvenna úr at­vinnu­líf­inu og fékk þess vegna þetta nafn.

Vin­sæld­ir hans eru auðskilj­an­leg­ar. Hann er flott­ur, fæst­ir deila um það, pass­ar við margt í fata­skápn­um og er vönduð flík frá þekktu fata­merki. Upp­tekn­ustu kon­ur lands­ins eru því fljót­ar að koma sér út á morgn­anna, jakk­inn er orðinn besti vin­ur­inn og mest notaða flík­in. Í hon­um er hægt að mæta fínn á fund en líka í kokteil­boð eft­ir vinnu, ekk­ert vesen. 

Dragt­ar­jakk­ar fást í flest­um fata­versl­un­um lands­ins og ætli flest­ar kon­ur eigi ekki einn svart­an inn í skáp. Blaðamaður sit­ur í ein­um núna við skrif­borðið en það vant­ar reynd­ar lógó-ið. Um­rædd­ur jakki hef­ur verið mjög áber­andi. Af hverju hef­ur hann verið svona vin­sæll? Er það merkið á vinstra brjóst­inu sem er orðið ein­hvers­kon­ar stöðutákn á meðal ís­lenskra kvenna?

„Ætli hann sé ekki svona vin­sæll því hann er úr þægi­legu og teygj­an­legu efni. Stærðirn­ar eru líka þannig að hann hent­ar bæði minni og stærri kon­um. Svo finnst ís­lensk­um kon­um al­veg gam­an að vera með og sýna lógóið. Ég held að það sé stór sölupunkt­ur,“ seg­ir Helena Björg Hafliðadótt­ir, versl­un­ar­stjóri í Mat­hilda, þar sem jakk­inn fæst.

Góð sala á jakk­an­um hér á landi hef­ur einnig vakið at­hygli fram­leiðanda. „Lógójakk­arn­ir eru auðvitað alltaf mjög vin­sæl­ir. En ég held að þetta sé búið að vera svo­lítið eins­dæmi hér, þeir tala svo­lítið þannig.“

Ofurkonujakkinn er til í mörgum útfærslum.
Of­ur­konujakk­inn er til í mörg­um út­færsl­um. Sam­sett mynd
Helena Hafliðadóttir verslunarstjóri í Mathildu.
Helena Hafliðadótt­ir versl­un­ar­stjóri í Mat­hildu.

Nú vin­sæll hjá öll­um kon­um

Tísku­straum­ar sem þess­ir koma og fara en yf­ir­leitt er hægt að benda á vin­sæla hluti hverr­ar tíðar fyr­ir sig. Dæmi: Gucci-beltið. Það sést mun minna af þeim fylgi­hlut á buxn­a­streng lands­manna en fyr­ir um það bil fimm árum. En svo ég vitni í eitt vin­sæl­asta hlaðvarp lands­ins, er komið gott af jakk­an­um?

„Nei, í raun­inni ekki. Við fáum mis­mun­andi út­færslu af jakk­an­um á hverri árstíð. Það eru sum­ar sem eiga alla liti og vilja fá sér hann með leður­bót­um til dæm­is til að poppa þetta aðeins upp. Svo núna erum við komn­ar með aðeins meiri leið á blá­um og svört­um en erum að fara aðeins meira út í lit­ina,“ seg­ir hún.

Helena er sam­mála þeirri staðreynd að fyrst um sinn hafi jakk­inn verið kennd­ur við kon­ur í at­vinnu­líf­inu. „Já það var það fyrst en nú finnst mér hann vera vin­sæll hjá öll­um kon­um. Þær sjá aðrar kon­ur í jakk­an­um og fylgja eft­ir.“

Ertu með grófa tölu á hversu marga þið hafið selt síðustu ár? „Mjög marga.“

mbl.is