Ástin blómstrar hjá Brynju og Lil Curly

Ný pör | 9. september 2024

Ástin blómstrar hjá Brynju og Lil Curly

Áhrifavaldarnir Brynja Bjarnadóttir Anderiman og Arnar Gauti Arnarsson, betur þekktur sem Lil Curly, eru nýtt par. 

Ástin blómstrar hjá Brynju og Lil Curly

Ný pör | 9. september 2024

Brynja Bjarnadóttir Anderiman og Arnar Gauti Arnarsson eru par.
Brynja Bjarnadóttir Anderiman og Arnar Gauti Arnarsson eru par. Skjáskot/Instagram

Áhrifa­vald­arn­ir Brynja Bjarna­dótt­ir And­erim­an og Arn­ar Gauti Arn­ars­son, bet­ur þekkt­ur sem Lil Cur­ly, eru nýtt par. 

Áhrifa­vald­arn­ir Brynja Bjarna­dótt­ir And­erim­an og Arn­ar Gauti Arn­ars­son, bet­ur þekkt­ur sem Lil Cur­ly, eru nýtt par. 

Brynja hef­ur vakið at­hygli á sam­fé­lags­miðlum þar sem hún birt­ir tísku- og lífs­stíl­stengt efni, en hún hef­ur unnið að kvik­mynda­gerð og kennt dans frá því hún út­skrifaðist frá Versl­un­ar­skóla Íslands. 

Arn­ar hef­ur náð mikl­um vin­sæld­um á sam­fé­lags­miðlum, þá sér­stak­lega á TikT­ok, en hann er ein þekkt­asta TikT­ok-stjarna lands­ins og er einnig ann­ar eig­enda Happy Hydra­te.

Hafa notið lífs­ins í Los Ang­eles

Brynja og Arn­ar hafa notið lífs­ins und­an­farn­ar vik­ur í Los Ang­eles í Banda­ríkj­un­um. Þau sögðust fyrst um sinn aðeins vera vin­ir en svo virðist sem neist­inn hafi fljót­lega kviknað á milli þeirra. 

Brynja birti myndaröð frá ferðalagi þeirra um Los Ang­eles á In­sta­gram-reikn­ingi þeirra þar sem þau sjást í faðmlög­um með sól­setrið og strönd­ina í bak­grunni. 

Smart­land ósk­ar þeim inni­lega til ham­ingju með ást­ina!

mbl.is