Tignarlegt útsýnishús við Elliðaárdal með tveimur aukaíbúðum

Heimili | 14. september 2024

Tignarlegt útsýnishús við Elliðaárdal með tveimur aukaíbúðum

Á fallegum útsýnisstað í botnlanga Starrahóla í Breiðholti stendur tignarlegt 298 fm einbýlishús sem reist var árið 1979. Á síðustu árum hefur húsið verið endurnýjað heilmikið og tvær 50 fm aukaíbúðir útbúnar.

Tignarlegt útsýnishús við Elliðaárdal með tveimur aukaíbúðum

Heimili | 14. september 2024

Ásett verð er 179.900.000 krónur.
Ásett verð er 179.900.000 krónur. Samsett mynd

Á fallegum útsýnisstað í botnlanga Starrahóla í Breiðholti stendur tignarlegt 298 fm einbýlishús sem reist var árið 1979. Á síðustu árum hefur húsið verið endurnýjað heilmikið og tvær 50 fm aukaíbúðir útbúnar.

Á fallegum útsýnisstað í botnlanga Starrahóla í Breiðholti stendur tignarlegt 298 fm einbýlishús sem reist var árið 1979. Á síðustu árum hefur húsið verið endurnýjað heilmikið og tvær 50 fm aukaíbúðir útbúnar.

Á efri hæðinni er bjart alrými með skemmtilegu skipulagi þar sem eldhús, stofa og borðstofa eru. Viðarbitar í lofti gefa rýminu mikinn sjarma ásamt stórum gluggum sem veita fallegt útsýni til fjalla.

Húsið er afar tignarlegt og skemmtilega hannað.
Húsið er afar tignarlegt og skemmtilega hannað. Ljósmynd/Af fasteignavef mbl.is
Á efri hæðinni er bjart alrými með eldhúsi, stofu og …
Á efri hæðinni er bjart alrými með eldhúsi, stofu og borðstofu. Ljósmynd/Af fasteignavef mbl.is

Arinstofa með glæsilegu útsýni

Eldhúsið er bjart og opið með stílhreinni hvítri innréttingu. Stór eldhúseyja prýðir rýmið, en þar er bæði gott vinnu- og skápapláss. Frá eldhúsi er gengið upp í sjarmerandi arinstofu með fallegum gluggum og arni.

Húsið hefur að geyma átta svefnherbergi og fimm baðherbergi. Ásett verð er 175.900.000 krónur.

Sjá nánar á fasteignavef mbl.is: Starrahólar 8

Arinstofan er sérlega notaleg með fallegu útsýni yfir Elliðaárdalinn.
Arinstofan er sérlega notaleg með fallegu útsýni yfir Elliðaárdalinn. Ljósmynd/Af fasteignavef mbl.is
Eldhúsið er bjart og opið með góðu vinnu- og skápaplássi.
Eldhúsið er bjart og opið með góðu vinnu- og skápaplássi. Ljósmynd/Af fasteignavef mbl.is
mbl.is