147 fm af ekta skandinavískum stíl í Kaupmannahöfn

Heimili | 15. september 2024

147 fm af ekta skandinavískum stíl í Kaupmannahöfn

Við Nørrebrogade í Kaupmannahöfn er til sölu sérlega sjarmerandi íbúð á annarri hæð í fallegu fjölbýlishúsi sem reist var árið 1891. Íbúðin telur 147 fm og hefur verið skemmtilega innréttuð með skandinavísku yfirbragði. 

147 fm af ekta skandinavískum stíl í Kaupmannahöfn

Heimili | 15. september 2024

Íbúðin er sannkölluð hönnunarparadís.
Íbúðin er sannkölluð hönnunarparadís. Samsett mynd

Við Nør­re­broga­de í Kaup­manna­höfn er til sölu sér­lega sjarmer­andi íbúð á ann­arri hæð í fal­legu fjöl­býl­is­húsi sem reist var árið 1891. Íbúðin tel­ur 147 fm og hef­ur verið skemmti­lega inn­réttuð með skandi­nav­ísku yf­ir­bragði. 

Við Nør­re­broga­de í Kaup­manna­höfn er til sölu sér­lega sjarmer­andi íbúð á ann­arri hæð í fal­legu fjöl­býl­is­húsi sem reist var árið 1891. Íbúðin tel­ur 147 fm og hef­ur verið skemmti­lega inn­réttuð með skandi­nav­ísku yf­ir­bragði. 

Íbúðin hef­ur fengið alls­herj­ar yf­ir­haln­ingu, en hún er afar björt og stát­ar af yfir þriggja metra loft­hæð. Í hönn­un­inni mæt­ist nýtt og gam­alt og býr til nota­lega stemn­ingu, en haldið var í suma upp­runa­lega hluta íbúðar­inn­ar sem gefa henni mik­inn sjarma og eru í anda bygg­ing­ar­stíls­ins.

Gulu tónarnir gefa eldhúsinu mikla hlýju.
Gulu tón­arn­ir gefa eld­hús­inu mikla hlýju. Ljós­mynd/​Ny­bolig.dk
Í stofunni fá bláir og rauðir tónar að njóta sín.
Í stof­unni fá blá­ir og rauðir tón­ar að njóta sín. Ljós­mynd/​Ny­bolig.dk
Fallegir hönnunarmunir prýða íbúðina.
Fal­leg­ir hönn­un­ar­mun­ir prýða íbúðina. Ljós­mynd/​Ny­bolig.dk

Hin full­komna litagleði

Dan­ir eru meist­ar­ar í að dansa á línu litagleðinn­ar, en í íbúðinni fá sér­vald­ir dýpri lit­ir að njóta sín í bland við nátt­úru­legri litap­all­ettu. 

Eld­hús og borðstofa eru samliggj­andi í björtu al­rými þar sem fag­ur­gul­ir tón­ar ráða ríkj­um. Eld­hús­inn­rétt­ing­in er míni­malísk og stíl­hrein með viðarfront­um, en á hluta eld­húss­ins hef­ur flís­um í fal­leg­um tón­um verið komið fyr­ir sem skapa sterk­an karakt­er.

Í stof­unni er blá­um og rauðum tón­um blandað sam­an í hús­mun­um og lista­verk­um, en það er svo tign­ar­leg­ur flyg­ill sem set­ur punkt­inn yfir i-ið í rým­inu. Eign­in stát­ar af þrem­ur svefn­her­bergj­um og einu baðher­bergi. Ásett verð er 9.995.000 dansk­ar krón­ur að því er fram kem­ur á vef Ny­bolig, eða sem nem­ur 204.697.600 krón­ur á gengi dags­ins í dag.

Flygill í stofunni setur punktinn yfir i-ið.
Flyg­ill í stof­unni set­ur punkt­inn yfir i-ið. Ljós­mynd/​Ny­bolig.dk
Mikil lofthæð er í íbúðinni.
Mik­il loft­hæð er í íbúðinni. Ljós­mynd/​Ny­bolig.dk
Frá stofunni er gengið inn í notalegt sjónvarpsherbergi.
Frá stof­unni er gengið inn í nota­legt sjón­varps­her­bergi. Ljós­mynd/​Ny­bolig.dk
Ekki amalegt!
Ekki ama­legt! Ljós­mynd/​Ny­bolig.dk
mbl.is