Meghan Markle var klippt út af afmælismynd

Kóngafólk | 16. september 2024

Meghan Markle var klippt út af afmælismynd

Meghan Markle var klippt út af mynd sem birtist á samfélagsmiðlasíðu bresku konungsfjölskyldunnar í tilefni af fertugsafmæli Harry prins í gærdag.

Meghan Markle var klippt út af afmælismynd

Kóngafólk | 16. september 2024

Harry prins fagnaði fertugsafmæli sínu í gærdag.
Harry prins fagnaði fertugsafmæli sínu í gærdag. Ljósmynd/AFP

Meghan Markle var klippt út af mynd sem birtist á samfélagsmiðlasíðu bresku konungsfjölskyldunnar í tilefni af fertugsafmæli Harry prins í gærdag.

Meghan Markle var klippt út af mynd sem birtist á samfélagsmiðlasíðu bresku konungsfjölskyldunnar í tilefni af fertugsafmæli Harry prins í gærdag.

Myndin sem fylgdi afmæliskveðjunni var tekin þegar hann og Markle heimsóttu nýsköpunarfyrirtækið Dogpatch Labs í Dyflinn á Írlandi árið 2018. Upprunalega myndin sýnir Markle skælbrosandi við hlið eiginmanns síns.

Þetta er í fyrsta sinn í þrjú ár sem konungsfjölskyldan birtir mynd í tilefni af afmælisdegi Harry prins.

„Við óskum hertoganum af Sussex hjartanlega til hamingju með 40 ára afmælið í dag,” skrifaði fulltrúi konungsfjölskyldunnar á Instagram á sunnudag.

Talsvert ósætti hefur ríkt innan konungsfjölskyldunnar allt frá því að Harry prins byrjaði með bandarísku leikkonunni Meghan Markle árið 2016.

Parið gekk í hjónaband þann 19. maí 2018 eftir rúmlega eins árs samband og stuttu síðar sagði hertoginn sig frá konunglegum störfum og hefur lítið sést með fjölskyldu sinni síðan.

mbl.is