Herragarður Gerðar í Kópavogi óskar eftir nýjum eiganda

Heimili | 18. september 2024

Herragarður Gerðar í Kópavogi óskar eftir nýjum eiganda

Gerður G. Óskarsdóttir doktor í menntunarfræðum hefur sett höll sína við Breiðahvarf í Kópavogi á sölu. Um er að ræða 274 fm einbýli sem reist var 2009. Húsið stendur á skjólsælum stað í hverfinu. 

Herragarður Gerðar í Kópavogi óskar eftir nýjum eiganda

Heimili | 18. september 2024

Gerður G. Óskarsdóttir.
Gerður G. Óskarsdóttir. Ljósmynd/Sverrir Vilhelmsson

Gerður G. Óskarsdóttir doktor í menntunarfræðum hefur sett höll sína við Breiðahvarf í Kópavogi á sölu. Um er að ræða 274 fm einbýli sem reist var 2009. Húsið stendur á skjólsælum stað í hverfinu. 

Gerður G. Óskarsdóttir doktor í menntunarfræðum hefur sett höll sína við Breiðahvarf í Kópavogi á sölu. Um er að ræða 274 fm einbýli sem reist var 2009. Húsið stendur á skjólsælum stað í hverfinu. 

Húsið er listilega innréttað eins og herragarður í heitu landi. Hér er ekki verið að eltast við tískustrauma augnabliksins. Engir brass-vaskar og engar bæsaðar innréttingar heldur vandaðar sígildar innréttingar með fulningahurðum sem þola öll tískutímabil.

Á gólfunum er vel lakkað fiskibeinaparket, persneskar mottur, voldug gluggatjöld og vönduð húsgögn í bland við listaverk og skrautmuni. Nostrað er við hvert smáatriði. 

Heimur Gerðar er sannkallaður ævintýraheimur þar sem hver hlutur er á sínum stað og er hlutum raðað upp á einstakan hátt. Dúkað hringlaga borð gefur tóninn og sómir sér vel í anddyri hússins. Í húsinu eru fjögur svefnherbergi og tvö baðherbergi og bílskúr. 

Húsið er á tveimur hæðum og er lóðin í kringum húsið gróin og vel ræktuð. 

Sjá nánar á fasteignavef mbl.is: Breiðahvarf 2

Forstofan í húsinu er smekklega innréttuð og setja blá gluggatjöld …
Forstofan í húsinu er smekklega innréttuð og setja blá gluggatjöld svip á rýmið.
Dúkað hringlaga borð sómir sér vel við stigann.
Dúkað hringlaga borð sómir sér vel við stigann.
Horft inn í húsið úr forstofunni.
Horft inn í húsið úr forstofunni.
Hver hlutur er á sínum stað á heimilinu.
Hver hlutur er á sínum stað á heimilinu.
Í stofunni er arinn.
Í stofunni er arinn.
Stofan er búin þægilegum stólum og sófum með sögu.
Stofan er búin þægilegum stólum og sófum með sögu.
Á hringlaga glerborði er skrautmunum raðað upp á fallegan hátt.
Á hringlaga glerborði er skrautmunum raðað upp á fallegan hátt.
Eldhúskrókur er í eldhúsinu.
Eldhúskrókur er í eldhúsinu.
mbl.is