Áslaug Arna dansaði með Ægi og móður hans

Hulda Björk Svansdóttir | 20. september 2024

Áslaug Arna dansaði með Ægi og móður hans

Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir háskóla-, iðnaðar- og nýsköpunarráðherra dansaði með Ægi Þór Sævarssyni og móður hans, Huldu Björk Svansdóttur. Ægir Þór er með Duchenne-vöðvarýrnunarsjúkdóminn. 

Áslaug Arna dansaði með Ægi og móður hans

Hulda Björk Svansdóttir | 20. september 2024

Video Player is loading.
Current Time 0:00
Duration 0:00
Loaded: 0%
Stream Type LIVE
Remaining Time 0:00
 
1x
  • Chapters
  • descriptions off, selected
  • subtitles off, selected
    • Quality

    Áslaug Arna Sig­ur­björns­dótt­ir há­skóla-, iðnaðar- og ný­sköp­un­ar­ráðherra dansaði með Ægi Þór Sæv­ars­syni og móður hans, Huldu Björk Svans­dótt­ur. Ægir Þór er með Duchenne-vöðvarýrn­un­ar­sjúk­dóm­inn. 

    „Ég verð að segja að ég er virki­lega ánægð með ráðherr­ana okk­ar á Íslandi. Ég er þakk­lát fyr­ir hvað þeir eru til­bún­ir að styðja gott mál­efni og dansa fyr­ir Duchenne með okk­ur. Þeir eru góð fyr­ir­mynd fyr­ir aðra ráðamenn í heim­in­um og því get­um við verið stolt af,“ seg­ir Hulda Björk.

    „Nú bæt­ist Áslaug Arna Sig­ur­björns­dótt­ir há­skóla-, iðnaðar- og ný­sköp­un­ar­ráðherra í hóp ráðherra frá Íslandi sem hafa dansað fyr­ir Duchenne. Hún veit hvað það er að eiga ást­vin sem glím­ir við sjald­gæf­an sjúk­dóm þar sem syst­ir henn­ar er með sjald­gæf­an efna­skipta­sjúk­dóm. Ég kann öll­um ráðherr­un­um frá­bær­ar þakk­ir fyr­ir að taka þátt og verð þeim æv­in­lega þakk­lát. Það er á óskalist­an­um mín­um að fá alla rík­is­stjórn­ina til að dansa við okk­ur og ég veit að það er allt hægt ef maður bara gefst ekki upp. Það var svo gam­an að dansa með Áslaugu og ég er einkar hrif­in af lag­inu sem hún valdi, það fær mig alltaf til að líða vel. Ég vona að þið ​hafið gam­an af þessu og dansið með ykk­ur. Fyr­ir hönd okk­ar Ægis sendi ég ykk­ur ljós og kær­leika. Megið þið eiga frá­bæra helgi,“ seg­ir Hulda. 

    mbl.is