Katla fæddi þriðja soninn á mettíma

Frægar fjölskyldur | 20. september 2024

Katla fæddi þriðja soninn á mettíma

Katla Hreiðarsdóttir fatahönnuður og eigandi fyrirtækisins Systur og makar eignaðist þriðja soninn í dag 20. september með eiginmanni sínum, Hauki Þorkelssyni. Sonurinn kom í heiminn klukkan 11.33 í dag og heilsast móður og barni vel. Katla hefur upplifað ýmislegt í sínum fæðingum eins og að fæða son á baðherbergisgólfinu árið 2022 en hjónin hafa eignast þrjú börn á sex árum. 

Katla fæddi þriðja soninn á mettíma

Frægar fjölskyldur | 20. september 2024

Katla Hreiðarsdóttir og Haukur Unnar Þorkelsson.
Katla Hreiðarsdóttir og Haukur Unnar Þorkelsson.

Katla Hreiðars­dótt­ir fata­hönnuður og eig­andi fyr­ir­tæk­is­ins Syst­ur og mak­ar eignaðist þriðja son­inn í dag 20. sept­em­ber með eig­in­manni sín­um, Hauki Þorkels­syni. Son­ur­inn kom í heim­inn klukk­an 11.33 í dag og heils­ast móður og barni vel. Katla hef­ur upp­lifað ým­is­legt í sín­um fæðing­um eins og að fæða son á baðher­berg­is­gólf­inu árið 2022 en hjón­in hafa eign­ast þrjú börn á sex árum. 

Katla Hreiðars­dótt­ir fata­hönnuður og eig­andi fyr­ir­tæk­is­ins Syst­ur og mak­ar eignaðist þriðja son­inn í dag 20. sept­em­ber með eig­in­manni sín­um, Hauki Þorkels­syni. Son­ur­inn kom í heim­inn klukk­an 11.33 í dag og heils­ast móður og barni vel. Katla hef­ur upp­lifað ým­is­legt í sín­um fæðing­um eins og að fæða son á baðher­berg­is­gólf­inu árið 2022 en hjón­in hafa eign­ast þrjú börn á sex árum. 

„20.09.24 Daðlan mætt í heim­inn! Al­vöru pungsi með al­vöru pungsa eins og rest­in af pungs­un­um mín­um! Krist­björg hreyfði við belgn­um í fyrra­dag og aft­ur í gær, var kom­in með 5 í út­víkk­un og náði enn einni ynd­is­legri gorma sund­ferð með eldri spott­un­um! Slím­tapp­inn fór líka í gær­kvöldi og verk­ir hóf­ust í fram­hald­inu og ágerðust í nótt, ég var svo kom­in með reglu­leg­ar hríðar um 05:30 og up­p­úr 06:00 voru um 5 mín á milli,“ seg­ir Katla í færslu á In­sta­gram síðu sinni. 

Hún seg­ir frá því að eldri son­um henn­ar hafi verið skutlað í leik­skól­ann í morg­un og að hún hafi náð einni loka­mynd af sér, eig­in­manni sín­um og tveim­ur eldri son­un­um í morg­un áður en þriðji son­ur­inn bætt­ist í hóp­inn. 

„Við vor­um kom­in inn á her­bergi á Lands­spital­an­um um 09:00 og ég fagnaði gasinu inni­lega! Það var það eina sem ég virki­lega saknaði í heima­fæðing­unni hjá Öss­uri. Krist­björg mætti rétt á eft­ir okk­ur en ég fékk extra flotta þjón­ustu og hún fylgdi okk­ur inn og í gegn­um þetta allt! Guðdóm­leg, ró­leg og skiln­ings­rík með enda­lausa reynslu!

Hann snéri ekki nógu hent­ug­lega svo ég var lát­in snúa mér á alla kanta, sprett­hlaup­astaða, pol­ar bear, læst hliðarlega og á fjór­um.. Um 11:15 hefjast hríðarn­ar ansi harka­leg­ar al­veg þannig að keyrt var á remb­ing og hann var mætt­ur 11:33. Þetta var ný aðferð. Ég fæddi hann á fjór­um, hann var með nafla­streng­inn tví­vaf­inn um fót­inn en mætti með lát­um, oggu blár og mál­in eru: 52cm 4177gr og 35 höfuð.

Smá blæðing en ekk­ert al­var­legt, eng­in þörf á nein­um saum­um eða lag­fær­ing­um, legið að jafna sig hratt og stuttu seinna tölt­um sam­an við af fæðing­ar­deild á sæng­ur­legu­deild þar sem við höf­um verið að chilla og dorma síðan, borða mikið enda loks magapláss f mat og svo feng­um ynd­is­lega heim­sókn frá Önnu ljósu,“ seg­ir hún. 

Katla seg­ir að þetta hafi verið hraðasta og þægi­leg­asta fæðing sem hún hafi upp­lifað. 

mbl.is ósk­ar Kötlu og Hauki til ham­ingju með þriðja son­inn!

mbl.is