Móðir í annað sinn örfáum mánuðum eftir legnám

Frægar fjölskyldur | 23. september 2024

Móðir í annað sinn örfáum mánuðum eftir legnám

Leikarahjónin John Mulaney og Olivia Munn eignuðust sitt annað barn saman nýverið. Fyrir eiga þau soninn Malcolm Hiệp sem kom í heiminn í nóvember 2021.  

Móðir í annað sinn örfáum mánuðum eftir legnám

Frægar fjölskyldur | 23. september 2024

Fjölskyldan er í skýjunum.
Fjölskyldan er í skýjunum. Skjáskot/Instagram

Leik­ara­hjón­in John Mula­ney og Oli­via Munn eignuðust sitt annað barn sam­an ný­verið. Fyr­ir eiga þau son­inn Malcolm Hiệp sem kom í heim­inn í nóv­em­ber 2021.  

Leik­ara­hjón­in John Mula­ney og Oli­via Munn eignuðust sitt annað barn sam­an ný­verið. Fyr­ir eiga þau son­inn Malcolm Hiệp sem kom í heim­inn í nóv­em­ber 2021.  

Munn til­kynnti gleðitíðind­in í færslu á In­sta­gram-síðu sinni í gær­dag og birti fal­lega myndaseríu af nýj­asta fjöl­skyldumeðlimn­um. Barnið, sem er stúlka, fædd­ist með aðstoð staðgöngumóður. 

„Ég upp­lifði alls kon­ar til­finn­ing­ar“

„Méi June Mula­ney kom í heim­inn þann 14. sept­em­ber 2024, á ári drek­ans. 

Ég upp­lifði alls kon­ar til­finn­ing­ar yfir því að geta ekki gengið með dótt­ur mína. Þegar ég hitti staðgöngumóður okk­ar í fyrsta sinn þá rædd­um við sam­an móðir til móður. Hún sýndi mér mik­inn skiln­ing og ég vissi í hjarta mínu að ég hefði fundið raun­veru­leg­an engil. Eng­in orð geta lýst þakk­læti mínu. Hún hélt barn­inu okk­ar ör­uggu í níu mánuði og lét langþráðan draum okk­ar ræt­ast.

Ég er svo stolt af litlu plóm­unni minni, litla drek­an­um mín­um sem lagði upp í þessa miklu veg­ferð til þess að koma til okk­ar. 

Méi (borið fram may) þýðir plóma á kín­versku,“ skrifaði nýbakaða móðirin við færsl­una.

Greind­ist með Lum­inal B-krabba­mein

Síðustu mánuðir hafa reynst Munn afar erfiðir.

Á síðasta ári greind­ist leik­kon­an með Lum­inal B-krabba­mein í báðum brjóst­um og gekkst und­ir tvö­falt brjóst­nám aðeins 30 dög­um eft­ir grein­ingu. Munn ákvað í fram­haldi að láta fjar­lægja leg, eggja­stokka og eggja­leiðara í þeirri von um að minnka lík­urn­ar á að meinið taki sig upp aft­ur.

View this post on In­sta­gram

A post shared by o l i v i a (@oli­viamunn)

mbl.is