Danir ætla að styðja við vopnaframleiðslu Úkraínumanna um 27 milljarða króna, eða um 1,3 milljarða danskra króna.

Danska dómsmálaráðuneytið segir að vopnin og annar búnaður tengdur hernaði verði framleiddur í Úkraínu.
Framleiðslan verður fjármögnuð með fjárhagsstuðningi Dana sem og fjármunum Rússa sem Danir höfðu fryst.
Danir tilkynntu einnig um stofnun sameiginlegrar varnarmiðstöðvar í Kænugarði sem ætlað er að stuðla að frekara samstarfi þjóðanna.
Í febrúar gerðu Danir tíu ára öryggissamning við Úkraínu í kjölfar sambærilegra samninga sem Úkraína hafði gert við Þýskaland, Bretland og Frakkland.
Í mars ákvað íslenska ríkið að styðja við Úkraínumenn með því að fjármagna skotfærakaup fyrir 300 milljónir króna.