Fjölmiðlakonan og eigandi framleiðslufyrirtækisins Skot Productions, Inga Lind Karlsdóttir, og Sigurður Viðarsson viðskiptamaður eru nýlegt par.

Ástin bankaði upp á í sumar en parið hafði þá nánast þekkst alla ævi þar sem þau voru saman í grunnskóla og tilheyra sama vinahópi úr Garðabænum sem er samheldinn.
Sigurður Viðarsson hefur verið á fleygiferð í íslensku viðskiptalífi. Hann var aðstoðarforstjóri Kviku banka en þar áður var hann forstjóri tryggingafélagsins TM.
Inga Lind hefur stýrt skemmtilegum sjónvarpsþáttum í gegnum tíðina en núna framleiðir hún þætti eins og Kappsmál sem sýndir eru á RÚV svo dæmi sé tekið. Auk þess hefur hún verið að feta nýjar brautir eins og að sitja fyrir hjá íslenska fatahönnuðinum Hildi Yeoman.
Smartland óskar Ingu Lind og Sigurði til hamingju með ástina!