Árás Írans virðist yfirstaðin

Ísrael/Palestína | 1. október 2024

Árás Írans virðist yfirstaðin

Árás Írans á Ísrael virðist vera yfirstaðin í bili. Ísraelski herinn hefur gefið íbúum merki um að þeir megi koma úr skjóli. 

Árás Írans virðist yfirstaðin

Ísrael/Palestína | 1. október 2024

Fólk leitar skjóls undir brú í Tel Avív.
Fólk leitar skjóls undir brú í Tel Avív. AFP/Jack Guez

Árás Írans á Ísra­el virðist vera yf­ir­staðin í bili. Ísra­elski her­inn hef­ur gefið íbú­um merki um að þeir megi koma úr skjóli. 

Árás Írans á Ísra­el virðist vera yf­ir­staðin í bili. Ísra­elski her­inn hef­ur gefið íbú­um merki um að þeir megi koma úr skjóli. 

Enn frem­ur seg­ir her­inn að ein­hverj­ar flaug­ar Írans hafi hæft skot­mörk í Ísra­el. Frek­ari upp­lýs­ing­ar liggja ekki fyr­ir að svo stöddu.

Íran hóf loft­árás á Ísra­el síðdeg­is í dag og lét sprengj­um rigna yfir borg­irn­ar Tel Avív og Jerúsalem. Íran axl­ar ábyrgð á árás­inni og seg­ir ír­anski bylt­ing­ar­vörður­inn að árás­in sé gerð til að hefna fyr­ir dauða leiðtoga His­bollah-sam­tak­anna, Hass­an Nasrallah. 

Sagði enn frem­ur í til­kynn­ingu þeirra að ef Ísra­el myndi bregðast við árás­inni myndu þeir hefna sín á ný. 

Ísra­el­ar heita hefnd­um

Í til­kynn­ingu frá Ísra­els­her seg­ir að árás Írans muni hafa af­leiðing­ar. Ein­hverj­ar af þeim eld­flaug­um er Íran skaut yfir landa­mær­in hafi hæft skot­mörk. Frek­ari upp­lýs­ing­ar liggja ekki fyr­ir að svo stöddu. 

„Við erum með plan sem við mun­um fram­kvæma þegar okk­ur sýn­ist,“ er haft eft­ir tals­manni hers­ins, Daniel Hag­ari.

Hann sagði enn frem­ur að ekki væri vitað til þess að nokk­ur hafi látið lífið í árás­inni.

Á myndinni sjást loftvarnir Ísraelshers hæfa eldflaugar sem Íran skaut …
Á mynd­inni sjást loft­varn­ir Ísra­els­hers hæfa eld­flaug­ar sem Íran skaut á loft yfir Ísra­el. AFP
mbl.is