Glappaskots Írans verði hefnt

Íran gerir árás á Ísrael | 1. október 2024

Glappaskots Írans verði hefnt

Benjamín Netanjahú forsætisráðherra Ísraels hefur heitið hefndum eftir loftárás Írans fyrr í kvöld. Hann segir að hefnt verði fyrir drambsamt glappaskot Írans.

Glappaskots Írans verði hefnt

Íran gerir árás á Ísrael | 1. október 2024

Öryggisráð Sameinuðu þjóðanna kemur til með að funda á morgun …
Öryggisráð Sameinuðu þjóðanna kemur til með að funda á morgun til að ræða stöðu mála í átökunum og hvernig forðast beri stigmögnun. AFP/Spencer Platt

Benja­mín Net­anja­hú for­sæt­is­ráðherra Ísra­els hef­ur heitið hefnd­um eft­ir loft­árás Írans fyrr í kvöld. Hann seg­ir að hefnt verði fyr­ir dramb­samt glappa­skot Írans.

Benja­mín Net­anja­hú for­sæt­is­ráðherra Ísra­els hef­ur heitið hefnd­um eft­ir loft­árás Írans fyrr í kvöld. Hann seg­ir að hefnt verði fyr­ir dramb­samt glappa­skot Írans.

„Við mun­um fram­fylgja þeirri reglu sem við höf­um ein­sett okk­ur: Við mun­um ráðast á hvern þann sem ræðst á okk­ur,“ sagði Net­anja­hú.

Skutu 200 eld­flaug­um

Íran skaut um 200 eld­flaug­um í átt að Ísra­el en í fyrstu var talið að þær hefðu verið nær 180.

Jake Sulli­v­an þjóðarör­ygg­is­ráðgjafi Banda­ríkja­for­seta sagði árás­ina mátt­vana og að at­lögu Írans hefði verið hrundið.

Pat­rick Ryder, und­ir­hers­höfðingi banda­ríska hers­ins og talsmaður varn­ar­málaráðuneyt­is Banda­ríkj­anna, Pentagon, sagði um­fang árás­ar­inn­ar tvö­falt á við fyrri árás Írans í apríl.

Greina á um meint skot­mörk

Að sögn tals­manns Ísra­els­hers, sem frétta­stofa AFP ræddi við, var ætl­un­ar­verk árás­ar­inn­ar að hæfa borg­ara­leg skot­mörk og drepa þúsund­ir borg­ara.

Íranski bylt­ing­ar­vörður­inn sagði aft­ur á móti að skot­mörk árás­ar­inn­ar hefðu verið þrjár her­stöðvar nærri borg­inni Tel Avív.

Bæði Joe Biden Banda­ríkja­for­seti og Kamala Harris, vara­for­seti og fram­bjóðandi demó­krata til for­seta, hafa heitið Ísra­el staðföst­um stuðningi í kjöl­far árás­ar­inn­ar.

Örygg­is­ráð Sam­einuðu þjóðanna fund­ar á morg­un til að ræða stöðu mála í átök­un­um og hvernig forðast beri stig­mögn­un.

mbl.is