Níu börn meðal fórnarlamba

Ísrael/Palestína | 6. október 2024

Níu börn meðal fórnarlamba

Heilbrigðisyfirvöld á Gasa greindu frá því í dag að minnst sautján hefðu fallið í loftárásum Ísraela á Jabaliya-svæðinu í norðurhluta landsins. Meðal fórnarlamba eru níu börn.

Níu börn meðal fórnarlamba

Ísrael/Palestína | 6. október 2024

Ísraelskir hermenn.
Ísraelskir hermenn. AFP

Heilbrigðisyfirvöld á Gasa greindu frá því í dag að minnst sautján hefðu fallið í loftárásum Ísraela á Jabaliya-svæðinu í norðurhluta landsins. Meðal fórnarlamba eru níu börn.

Heilbrigðisyfirvöld á Gasa greindu frá því í dag að minnst sautján hefðu fallið í loftárásum Ísraela á Jabaliya-svæðinu í norðurhluta landsins. Meðal fórnarlamba eru níu börn.

Ísraelskar hersveitir hafa umkringt Jabaliya til að bregðast við vísbendingum um að Hamas-samtökin séu að byggja þar upp aðstöðu að nýju.

Lögreglukona lét lífið

Þá greinir BBC frá því að lét lögreglukona hafi  látið lífið og 10 særst í skotárás í borginni Beersheba í suðurhluta Ísraels. Skotárásin átti sér stað á strætisvagnastöð í borginni og var byssumaðurinn skotinn til bana.

Fórnarlambið var Shira Chaya Suslik, liðþjálfi frá ísraelsku landamæralögreglunni. Í síðustu viku létu sjö manns lífið í skotárás og hnífaárás í Tel Aviv eftir að byssumaður hóf skothríð á almenning á Jaffa-svæðinu.

mbl.is