Sagði heiminn verða að styðja Ísrael í þágu friðar

Ísrael/Palestína | 7. október 2024

Sagði heiminn verða að styðja Ísrael í þágu friðar

Ísraelar minnast þess í dag að eitt ár er liðið síðan vígamenn Hamas-samtakanna gerðu mannskæða árás á landið 7. október í fyrra.

Sagði heiminn verða að styðja Ísrael í þágu friðar

Ísrael/Palestína | 7. október 2024

Isaac Herzog flytur ræðu 11. september síðastliðinn.
Isaac Herzog flytur ræðu 11. september síðastliðinn. AFP/Oliver Bunic

Ísraelar minnast þess í dag að eitt ár er liðið síðan vígamenn Hamas-samtakanna gerðu mannskæða árás á landið 7. október í fyrra.

Ísraelar minnast þess í dag að eitt ár er liðið síðan vígamenn Hamas-samtakanna gerðu mannskæða árás á landið 7. október í fyrra.

„Heimurinn verður að átta sig á því og skilja að til þess að breyta gangi sögunnar og koma á friði, betri framtíð fyrir svæðið, verður hann að styðja Ísrael í baráttunni gegn óvinum þess,“ sagði Isaac Herzog, forseti Ísraels, í tilkynningu.

Minningarathafnir og fleiri viðburðir eru fyrirhugaðir víðs vegar um Ísrael og í borgum víða um heim til að minnast þeirra rúmlega 1.200 manns sem féllu í árásinni.

Einnar mínútu þögn

Herzog hóf daginn með einnar mínútu þögn, klukkan 6.29 fyrir hádegi að staðartíma, sem er sami tími og þegar árásin hófst, á Kibbutz Reim þar sem Nova-tónlistarhátíðin var haldin. Þar voru 370 manns drepnir af þungvopnuðum liðsmönnum Hamas.

Fjölskyldur þeirra sem voru drepnir mættu á minningarathöfnina og voru margar þeirra grátandi þegar Herzog mætti á staðinn, að sögn fréttamanns AFP á staðnum.

Ísraelskir hermenn á Gasasvæðinu.
Ísraelskir hermenn á Gasasvæðinu. AFP

Skutu flugskeytum í átt að Ísrael

Að minnsta kosti fjórum flugskeytum var skotið frá Gasasvæðinu í átt að Ísrael nokkrum mínútum eftir að Ísraelar byrjuðu að minnast fórnarlambanna, að sögn Ísraelshers.

Herinn skaut niður fjögur þeirra og eitt lenti á opnu svæði, sagði herinn í tilkynningu.

Hamas-samtökin sögðust í tilkynningu hafa skotið flugskeytum á suðurhluta Ísraels á „samkomur óvinarins“ við Rafah-landamærin, Kerem Shalom-landamærin og kibbutz Holit, skammt frá landamærunum hjá Gasa.

Reykur yfir þorpinu Khiam í suðurhluta Líbanons eftir loftárás Ísraela …
Reykur yfir þorpinu Khiam í suðurhluta Líbanons eftir loftárás Ísraela í síðustu viku. AFP

Ísraelskur hermaður féll 

Ísraelsher sagði jafnframt að einn ísraelskur hermaður hefði verið drepinn við landamæri Ísraels og Líbanons. Loftárásir Ísraela á Líbanon héldu áfram í morgun. Loftvarnarflautur ómuðu í höfuðborginni Beirút.

Gísl lést í haldi Hamas

Ísraelsk samtök tilkynntu í morgun að einn gísl væri látinn sem hefði verið í haldi Hamas-liða á Gasasvæðinu. Þau sögðu að Idan Shtivi, 28 ára, hefði verið numinn á brott á Nova-tónlistarhátíðinni og að „lík hans er enn í haldi Hamas“.

Fram kom að Shtivi hefði verið nýkominn á hátíðina þegar árásin hófst.

mbl.is