Vasaþjófarnir fylgja uppskrift: Lá við handalögmálum

Ferðamenn á Íslandi | 9. október 2024

Vasaþjófarnir fylgja uppskrift: Lá við handalögmálum

Einar Á. E. Sæmundsen, þjóðgarðsvörður á Þingvöllum, segir vasaþjófnað reglulega hafa komið upp á undanförnum tveimur árum.

Vasaþjófarnir fylgja uppskrift: Lá við handalögmálum

Ferðamenn á Íslandi | 9. október 2024

Einar Á. E. Sæmundssen, þjóðgarðsvörður á Þingvöllum, segir vasaþjófnað reglulega …
Einar Á. E. Sæmundssen, þjóðgarðsvörður á Þingvöllum, segir vasaþjófnað reglulega taka skarpri uppsveiflu. Samsett mynd/Hari/Sigurður Bogi

Ein­ar Á. E. Sæ­mundsen, þjóðgarðsvörður á Þing­völl­um, seg­ir vasaþjófnað reglu­lega hafa komið upp á und­an­förn­um tveim­ur árum.

Ein­ar Á. E. Sæ­mundsen, þjóðgarðsvörður á Þing­völl­um, seg­ir vasaþjófnað reglu­lega hafa komið upp á und­an­förn­um tveim­ur árum.

Leiðsögumaður birti í dag færslu á Face­book-hópn­um Bak­land ferðaþjón­ust­unn­ar og varaði þar við vasaþjóf­um á Þing­völl­um.

„Ætli þetta sé ekki þriðja eða fjórða lot­an á síðustu tveim­ur árum,“ seg­ir Ein­ar innt­ur eft­ir því hvort vasaþjófnaður sé tíður á svæðinu.

Nota mynda­tök­ur til að fara í bak­poka

Yf­ir­leitt er skörp upp­sveifla í vasaþjófnaði á ferðamanna­stöðum að sögn Ein­ars sem kveðst síðast muna til slíkr­ar sveiflu um síðustu jól.

„Menn voru gripn­ir glóðvolg­ir hérna um jól­in í fyrra og þá lá nú við handa­lög­mál­um. Það mál upp­lýst­ist og fékk ein­hverja veg­ferð í kerf­inu.“

Hann seg­ir þjófnaðina yf­ir­leitt fylgja svipuðu mynstri þar sem óprúttn­ir aðilar nýti sér mannþröng t.d. uppi við Hakið eða niðri í Al­manna­gjá til að hnupla veskj­um og verðmæt­um úr bak­pok­um og vös­um. 

„Þetta er alltaf sama upp­skrift­in. Það eru granda­laus­ir ferðamenn sem koma og biðja um að fá að taka mynd af þeim eða aðstoða við mynda­töku og á meðan er þá farið í bak­poka.“

Óvandað fólk

Spurður hvort um sé að ræða skipu­lagða glæpa­hópa kveðst Ein­ar hafa heyrt að yf­ir­leitt sé um er­lenda hópa að ræða sem komi hingað í styttri tíma í þeim til­gangi að brjóta af sér og hverfi síðan af landi brott.

Hann seg­ir land­verði þjóðgarðsins vera vak­andi fyr­ir vasaþjóf­um og að skilti hafi verið sett upp til að minna ferðamenn á að hafa var­ann á.

„Þetta hef­ur gerst á Geysi og Gull­fossi og víðar þar sem fjöl­farn­ir ferðamannastaðir eru farn­ir að draga að sér svona óvandað fólk,“ seg­ir Ein­ar.

Þjóðgarður­inn aðstoði lög­reglu eft­ir bestu getu í mál­un­um, til að mynda með því að veita efni úr ör­ygg­is­mynda­vél­um. Seg­ir Ein­ar gott að vita til þess að leiðsögu­menn og bíl­stjór­ar séu vak­andi fyr­ir þjóf­un­um og láti orðið ber­ast þegar þeir séu á sveimi í þjóðgarðinum.

mbl.is