Á erfiðum stað andlega

Justin Bieber | 10. október 2024

Á erfiðum stað andlega

Söngvarinn Justin Bieber er sagður eiga um sárt að binda þessa dagana eftir að gefin var ákæra á hendur tónlistarmannsins Sean Combs, betur þekktur sem P. Diddy.

Á erfiðum stað andlega

Justin Bieber | 10. október 2024

Justin Bieber er sagður eiga erfitt andlega um þessar mundir.
Justin Bieber er sagður eiga erfitt andlega um þessar mundir. AFP

Söngv­ar­inn Just­in Bie­ber er sagður eiga um sárt að binda þessa dag­ana eft­ir að gef­in var ákæra á hend­ur tón­list­ar­manns­ins Sean Combs, bet­ur þekkt­ur sem P. Diddy.

Söngv­ar­inn Just­in Bie­ber er sagður eiga um sárt að binda þessa dag­ana eft­ir að gef­in var ákæra á hend­ur tón­list­ar­manns­ins Sean Combs, bet­ur þekkt­ur sem P. Diddy.

Mál P. Diddy hef­ur vakið mikla at­hygli á meðal al­menn­ings að und­an­förnu. Er hon­um gefið að sök að hafa beitt fjölda fólks grófu kyn­ferðisof­beldi um margra ára­skeið og neytt það til ým­issa kyn­lífs­at­hafna.

Eiga sína sögu

Bie­ber og P. Diddy eru sagðir hafa verið nán­ir vin­ir á árum áður, sér­stak­lega á þeim árum sem Bie­ber skaust fyrst upp á stjörnu­him­in­inn, en að upp úr vin­skapi þeirra hafi flosnað með tím­an­um. Þeir hafi þó alltaf átt í sam­skipt­um við og við í gegn­um tíðina, þá aðallega um það sem sneri að og tengd­ist tónlist og laga­smíð.   

„Just­in er á erfiðum stað and­lega núna,“ er haft eft­ir heim­ilda­manni Bie­bers. Fréttamiðill­inn Page Six grein­ir frá.

„Hann á sína sögu með Diddy og þess­ar ásak­an­ir hafa reynst hon­um erfiðar til úr­vinnslu.“ 

Draug­ar fortíðar­inn­ar banka upp á

Nöfn fjölda Hollywood-stjarna hafa verið nefnd í tengsl­um við svo­kölluð „P. Diddy-partí“ og því haldið fram að gróf­ar kyn­lífs­at­hafn­ir hafi spilað stór­an þátt í par­tí­un­um sem gest­kom­andi hafi beint eða óbeint verið neydd­ir til þátt­töku í. Kynsvallið hafi svo í ein­hverj­um til­fell­um verið myndað og eru stjörn­ur tón­list­ar­heims­ins sagðar súpa hvelj­ur yfir mögu­leik­an­um á því að til séu kyn­lífs­mynd­bönd af þeim sem gerð verði op­in­ber á ein­hverj­um tíma­punkti.

„Þetta er fortíð hans og hann vill skilja þetta eft­ir þar,“ seg­ir heim­ildamaður Bie­bers og tek­ur það fram að síðustu ár hafi Bie­ber ein­beitt sér mest að sér sjálf­um og fjöl­skyld­unni. Ekki síst und­an­farna mánuði, eða frá því frumb­urður hans og eig­in­konu hans, Hailey Bie­ber, kom í heim­inn. 

„Ham­ingja hans í föður­hlut­verk­inu hef­ur samt sem áður vegið þyngra en áhyggj­urn­ar af Diddy.“ 

mbl.is