Þetta eru nýju ofurkonufötin

Tískuvikan í París | 15. október 2024

Þetta eru nýju ofurkonufötin

Sýning franska tískuhússins Saint Laurent fyrir vorið/sumarið 2025 fór fram í París á dögunum. Sýningarinnar er ávallt beðið með mikilli eftirvæntingu enda er fremsta röð yfirleitt fyllt stórstjörnum og fötin glæsileg. Listrænn stjórnandi Saint Laurent er Anthony Vaccarello og hefur hann gegnt því starfi frá árinu 2016.

Þetta eru nýju ofurkonufötin

Tískuvikan í París | 15. október 2024

Frá sýningu Saint Laurent fyrir vor/sumar 2025.
Frá sýningu Saint Laurent fyrir vor/sumar 2025. Samsett mynd

Sýn­ing franska tísku­húss­ins Saint Laurent fyr­ir vorið/​sum­arið 2025 fór fram í Par­ís á dög­un­um. Sýn­ing­ar­inn­ar er ávallt beðið með mik­illi eft­ir­vænt­ingu enda er fremsta röð yf­ir­leitt fyllt stór­stjörn­um og föt­in glæsi­leg. List­rænn stjórn­andi Saint Laurent er Ant­hony Vaccar­ello og hef­ur hann gegnt því starfi frá ár­inu 2016.

Sýn­ing franska tísku­húss­ins Saint Laurent fyr­ir vorið/​sum­arið 2025 fór fram í Par­ís á dög­un­um. Sýn­ing­ar­inn­ar er ávallt beðið með mik­illi eft­ir­vænt­ingu enda er fremsta röð yf­ir­leitt fyllt stór­stjörn­um og föt­in glæsi­leg. List­rænn stjórn­andi Saint Laurent er Ant­hony Vaccar­ello og hef­ur hann gegnt því starfi frá ár­inu 2016.

Kven­leg snið, stutt­ir kjól­ar, mitt­is­belti og þröng­ir jakk­ar hafa ein­kennt fatnað Vaccar­ello fyr­ir Saint Laurent síðustu ár. Þó að þannig fatnaður hafi vissu­lega verið til staðar í lín­unni þá var annað mun meira áber­andi og er aug­ljóst að hann hafi verið und­ir áhrif­um frá karla­tísku tí­unda ára­tug­ar­ins.

Það mætti segja að Vaccar­ello hafi komið með nýja of­ur­konu­bún­ing­inn; víðar dragt­ir, hvít­ar bóm­ull­ar­skyrt­ur sem hneppt­ar voru upp í háls og bindi. Stór, áber­andi gler­augu og hárið smurt aft­ur. Hann hætti ekki þar held­ur voru stór­ir leður­jakk­ar sett­ir yfir og flug­manna­sólgler­aug­um skellt á nefið. 

Þetta er ork­an sem póli­tík­us­ar ættu að taka með sér inn í kom­andi kosn­inga­törn.

Vaccarello var undir áhrifum karlatísku tíunda áratugarins.
Vaccar­ello var und­ir áhrif­um karla­tísku tí­unda ára­tug­ar­ins. Ljós­mynd/​AFP
Stór leðurjakki, stór dragt og stór gleraugu.
Stór leður­jakki, stór dragt og stór gler­augu. Ljós­mynd/​AFP
Stílisering upp á tíu.
Stíliser­ing upp á tíu. Ljós­mynd/​AFP
Þetta kemur líka vel út í ljósum lit.
Þetta kem­ur líka vel út í ljós­um lit. Ljós­mynd/​AFP
Ofurfyrirsætan Bella Hadid.
Of­ur­fyr­ir­sæt­an Bella Hadid. Ljós­mynd/​AFP
Svolítið lúðalegt og svolítið töff?
Svo­lítið lúðal­egt og svo­lítið töff? Ljós­mynd/​AFP
Það er mikil nostalgía í röndótta og þykka bindinu.
Það er mik­il nostal­g­ía í rönd­ótta og þykka bind­inu. Ljós­mynd/​AFP
mbl.is