„Nú hefst nýr kafli í lífi okkar“

Raddir Grindvíkinga | 24. október 2024

„Nú hefst nýr kafli í lífi okkar“

Grindavíkurþingmaðurinn Vilhjálmur Árnason, ritari Sjálfstæðisflokksins, hefur flutt lögheimili sitt í Reykjanesbæ. Hann segir að þrátt fyrir ítrekuð áföll á undanförnu ári sé hann og fjölskyldan full af bjartsýni í nýjum heimabæ.

„Nú hefst nýr kafli í lífi okkar“

Raddir Grindvíkinga | 24. október 2024

Vilhjálmur ásamt eiginkonu sinni, Sigurlaugu Pétursdóttur, og strákunum þeirra.
Vilhjálmur ásamt eiginkonu sinni, Sigurlaugu Pétursdóttur, og strákunum þeirra. Ljósmynd/Facebook

Grinda­vík­urþingmaður­inn Vil­hjálm­ur Árna­son, rit­ari Sjálf­stæðis­flokks­ins, hef­ur flutt lög­heim­ili sitt í Reykja­nes­bæ. Hann seg­ir að þrátt fyr­ir ít­rekuð áföll á und­an­förnu ári sé hann og fjöl­skyld­an full af bjart­sýni í nýj­um heima­bæ.

Grinda­vík­urþingmaður­inn Vil­hjálm­ur Árna­son, rit­ari Sjálf­stæðis­flokks­ins, hef­ur flutt lög­heim­ili sitt í Reykja­nes­bæ. Hann seg­ir að þrátt fyr­ir ít­rekuð áföll á und­an­förnu ári sé hann og fjöl­skyld­an full af bjart­sýni í nýj­um heima­bæ.

Þessu grein­ir hann frá í færslu á Face­book.

Hann seg­ir að á mánu­dag­inn hafi verið tíma­mót fyr­ir hann og Grinda­vík. Á sama tíma og bær­inn opnaði á ný fyr­ir al­menn­ingi flutti hann form­lega lög­heim­ili sitt að Lyng­móa í Njarðvík í Reykja­nes­bæ.

Árið sam­an­staðið af áföll­um

„Árið hef­ur sam­an­staðið af ít­rekuðum áföll­um og áskor­un­um sem við fjöl­skyld­an höf­um kom­ist í gegn­um, með hjálp frá bæði sam­fé­lag­inu í Grinda­vík og Reykja­nes­bæ, ásamt vina og ætt­ingja. Það er óneit­an­lega mik­il og til­finn­an­leg breyt­ing að flytja fjöl­skyld­una eft­ir rým­ing­una í Grinda­vík, en við Silla erum full bjart­sýni og hlökk­um til að sjá strák­ana okk­ar vaxa og dafna í nýj­um heima­bæ okk­ar, Reykja­nes­bæ,“ skrif­ar Vil­hjálm­ur og held­ur áfram:

„Þrátt fyr­ir að ég sé nú flutt­ur í frá­bært og ört stækk­andi sveit­ar­fé­lag, þar sem tæki­fær­in eru á hverju strái, mun hjartað mitt ávallt slá með Grinda­vík.“

Hann seg­ir að enn séu marg­ar fjöl­skyld­ur og fyr­ir­tæki sem búi við óvissu og því ætli hann áfram að berj­ast fyr­ir hags­mun­um Grind­vík­inga.

Sjald­an verið jafn stolt­ur af því að vera Íslend­ing­ur

Hann seg­ir að fullt til­efni sé til bjart­sýni fyr­ir framtíð Grinda­vík­ur. Líf sé komið í höfn­ina, börn muni sækja skóla í sveit­ar­fé­lag­inu í framtíðinni og að sam­fé­lagið muni vaxa og dafna á nýj­an leik.

Hann kveðst ætla leggja sitt af mörk­um til að tryggja að Grinda­vík verði áfram eitt öfl­ug­asta sveit­ar­fé­lag lands­ins.

„Ég hef sjald­an verið jafn stolt­ur að því að vera Íslend­ing­ur og Suður­nesjamaður, því þegar á móti blæs þá stönd­um við sam­an, hjálp­um hvert öðru og byggj­um hvert annað upp. Nú hefst nýr kafli í lífi okk­ar fjöl­skyld­unn­ar en við erum öll sem eitt full eft­ir­vænt­ing­ar fyr­ir framtíðinni í Reykja­nes­bæ.“

mbl.is