Bílalest Selenskís á leið á Þingvelli

Norðurlandaráðsþing 2024 | 28. október 2024

Bílalest Selenskís á leið á Þingvelli

Bílalest Volodimírs Selenskí er nú á leið á Þingvelli eftir að forsetinn fór beint eftir komu sína til landsins niður í miðbæ Reykjavíkur. Þyrlur fljúga með bílalestinni, auk þess sem lögregla lokar veginum þannig að umferð fyrir bílalestina sé greið.

Bílalest Selenskís á leið á Þingvelli

Norðurlandaráðsþing 2024 | 28. október 2024

Bílalestin á leið upp Ártúnsbrekkuna nú fyrir skömmu.
Bílalestin á leið upp Ártúnsbrekkuna nú fyrir skömmu. mbl.is/Árni Sæberg

Bíla­lest Volodimírs Selenskí er nú á leið á Þing­velli eft­ir að for­set­inn fór beint eft­ir komu sína til lands­ins niður í miðbæ Reykja­vík­ur. Þyrl­ur fljúga með bíla­lest­inni, auk þess sem lög­regla lok­ar veg­in­um þannig að um­ferð fyr­ir bíla­lest­ina sé greið.

Bíla­lest Volodimírs Selenskí er nú á leið á Þing­velli eft­ir að for­set­inn fór beint eft­ir komu sína til lands­ins niður í miðbæ Reykja­vík­ur. Þyrl­ur fljúga með bíla­lest­inni, auk þess sem lög­regla lok­ar veg­in­um þannig að um­ferð fyr­ir bíla­lest­ina sé greið.

Þetta er hans fyrsta form­lega heim­sókn til lands­ins, en hann mun eiga fund með Bjarna Bene­dikts­syni for­sæt­is­ráðherra á Þing­völl­um og taka þátt í fjórða leiðtoga­fundi Norður­land­anna og Úkraínu á morg­un í Ráðhúsi Reykja­vík­ur og Smiðju.

Í til­kynn­ingu fyrr í dag sagði Selenskí að viðræðurn­ar muni snú­ast um stuðning við svo­kallaða Siguráætl­un og þá þætti þar sem sam­vinna þjóðanna geti áorkað sem mestu.

Fjöldi lögreglumanna á mótorhjólum fylgdi bílalestinni og loka fyrir umferð …
Fjöldi lög­reglu­manna á mótor­hjól­um fylgdi bíla­lest­inni og loka fyr­ir um­ferð meðan bíla­lest Volodimírs Selenskí, for­seta Úkraínu, fór hjá. mbl.is/Á​rni Sæ­berg

Nefn­ir hann fjár­mögn­un úkraínskr­ar vopna­fram­leiðslu og lang­drægra vopna, und­ir­bún­ing fyr­ir vet­ur­inn, ör­yggi úti á sjó, þving­an­ir gegn skugga­flota Rúss­lands, aukna aðstoð við varn­ir, þjálf­un og búnað fyr­ir úkraínskt herlið.

Seg­ir hann Norður­lönd staðfast­an banda­mann Úkraínu og að sam­ráðsvett­vang­ur Úkraínu og Norður­landa sé einn skil­virk­asti marg­hliða vett­vang­ur­inn.

Þyrla gæslunnar flaug með bílalestinni líkt og þegar komið var …
Þyrla gæsl­unn­ar flaug með bíla­lest­inni líkt og þegar komið var frá Kefla­vík­ur­flug­velli. mbl.is/Á​rni Sæ­berg
Frá lokunarpósti við Ártúnsbrekkuna nú á þriðja tímanum.
Frá lok­un­ar­pósti við Ártúns­brekk­una nú á þriðja tím­an­um. mbl.is/Á​rni Sæ­berg
mbl.is