„Kormákur fékkst ekki samþykkt sem ættarnafn“

Frægar fjölskyldur | 30. október 2024

„Kormákur fékkst ekki samþykkt sem ættarnafn“

Leikstjórinn Baltasar Kormákur Baltasarsson og myndlistarmaðurinn Sunneva Ása Weisshappel eignuðust dóttur 5. ágúst. Sagt var frá því á Smartlandi í gær að parið hefði þurft samþykki fyrir nafni dótturinnar sem heitir Kilja Kormákur og er Baltasarsdóttir. 

„Kormákur fékkst ekki samþykkt sem ættarnafn“

Frægar fjölskyldur | 30. október 2024

Baltasar Kormákur fékk ekki leyfi fyrir því að Kormákur væri …
Baltasar Kormákur fékk ekki leyfi fyrir því að Kormákur væri ættarnafn og því þurfti dóttir hans, Kilja Kormákur, að vera Baltasarsdóttir. AFP/Angela Weiss

Leik­stjór­inn Baltas­ar Kor­mák­ur Baltas­ars­son og mynd­list­armaður­inn Sunn­eva Ása Weiss­happ­el eignuðust dótt­ur 5. ág­úst. Sagt var frá því á Smartlandi í gær að parið hefði þurft samþykki fyr­ir nafni dótt­ur­inn­ar sem heit­ir Kilja Kor­mák­ur og er Baltas­ars­dótt­ir. 

Leik­stjór­inn Baltas­ar Kor­mák­ur Baltas­ars­son og mynd­list­armaður­inn Sunn­eva Ása Weiss­happ­el eignuðust dótt­ur 5. ág­úst. Sagt var frá því á Smartlandi í gær að parið hefði þurft samþykki fyr­ir nafni dótt­ur­inn­ar sem heit­ir Kilja Kor­mák­ur og er Baltas­ars­dótt­ir. 

Faðir stúlk­unn­ar, Baltas­ar Kor­mák­ur, sagði í sam­tali við Smart­land að þau Sunn­eva hafi verið skyldug til að bæta Baltas­ars­dótt­ir við nafn stúlk­unn­ar af Þjóðskrá. Ekki hafi gef­ist tími til að kæra þann úr­sk­urð þar sem fjöl­skyld­an var á leið til út­landa og þurftu vega­bréf fyr­ir dótt­ur­ina. 

Mál Kilju Kor­máks kom inn á borð manna­nafna­nefnd­ar 14. ág­úst og var úr­sk­urðað í mál­inu 3. sept­em­ber 2024. 

Í úr­sk­urðinum kem­ur fram að heim­ilt sé að samþykkja nýtt eig­in­nafn ef öll skil­yrði 5. gr. laga, nr. 45/​​1996, um manna­nöfn sé upp­fyllt. Skil­yrðin eru:

  1. Eig­in­nafn skal geta tekið ís­lenska eign­ar­fallsend­ingu eða hafa unnið sér hefð í ís­lensku máli.
  2. Nafnið má ekki brjóta í bága við ís­lenskt mál­kerfi.
  3. Það skal ritað í sam­ræmi við al­menn­ar rit­regl­ur ís­lensks máls nema hefð sé fyr­ir öðrum rit­hætti þess.
  4. Eig­in­nafn má ekki vera þannig að það geti orðið nafn­bera til ama.
Baltasar Kormákur og Sunneva Ása Weisshappel. Myndin var tekin í …
Baltas­ar Kor­mák­ur og Sunn­eva Ása Weiss­happ­el. Mynd­in var tek­in í vor þegar Sunn­eva gekk með Kilju Kor­mák.

Fékkst ekki samþykkt

„Kor­mák­ur fékkst ekki samþykkt sem ætt­ar­nafn en það var upp­haf­lega hug­mynd­in. Ætt­ar­nafns­lög­in eru furðuleg á Íslandi. Kor­mák­ur er vissu­lega karl­manns­nafn en það er leyfi­legt að skíra stúlku karl­manns­nafni ef það eru nafn núm­er tvö eins og fjöl­mörg vitni eru um. Það þurfti því ekki samþykki,“ seg­ir Baltas­ar Kor­mák­ur í sam­tali við Smart­land. 

Kilja Kor­mák­ur er ekki eina barn Baltas­ars Kor­máks sem ber nafnið Kor­mák­ur.  

„Tveir af son­um mín­um heita Kor­mák­ur,“ seg­ir Baltas­ar og nefn­ir Pálma Kor­mák sem fór með hlut­verk í Snert­ingu og Storm Jón Kor­mák sem komst inn í leik­list­ar­deild Lista­há­skóla Íslands á dög­un­um og stund­ar þar nám. 

Það er þó ekki útséð um að Kor­mák­ur geti orðið ætt­ar­nafn ef marka má fyrri úr­sk­urði manna­nafna­nefnd­ar sem samþykkti Gn­arr sem ætt­ar­nafn þegar Jón Gn­arr og fjöl­skylda hans börðust fyr­ir því hér um árið. 

Hér er Stormur Jón Kormákur ásamt Haraldi Ara Stefánssyni og …
Hér er Storm­ur Jón Kor­mák­ur ásamt Har­aldi Ara Stef­áns­syni og Sæ­unni Ólafs­dótt­ur árið 2022. mbl.is/​Eggert Jó­hann­es­son
Baltasar Kormákur, Unnur Backman og Pálmi Kormákur.
Baltas­ar Kor­mák­ur, Unn­ur Backm­an og Pálmi Kor­mák­ur. Ljós­mynd/​RVK Studi­os
mbl.is