Norrænu ríkin verði að grípa til aðgerða

Loftslagsvá | 31. október 2024

Norrænu ríkin verði að grípa til aðgerða

„Norrænu ríkin verða að grípa til sameiginlegra aðgerða til að draga úr mengun frá skipasiglingum í norðurhöfum,“ segir í yfirlýsingu sem Náttúruverndarsamtök Íslands (NÍ) hafa sent frá sér.

Norrænu ríkin verði að grípa til aðgerða

Loftslagsvá | 31. október 2024

Kallað er eftir aðgerðum til að draga úr mengun frá …
Kallað er eftir aðgerðum til að draga úr mengun frá skipasiglingum á norðurhöfum. mbl.is/port.is

„Nor­rænu rík­in verða að grípa til sam­eig­in­legra aðgerða til að draga úr meng­un frá skipa­sigl­ing­um í norður­höf­um,“ seg­ir í yf­ir­lýs­ingu sem Nátt­úru­vernd­ar­sam­tök Íslands (NÍ) hafa sent frá sér.

„Nor­rænu rík­in verða að grípa til sam­eig­in­legra aðgerða til að draga úr meng­un frá skipa­sigl­ing­um í norður­höf­um,“ seg­ir í yf­ir­lýs­ingu sem Nátt­úru­vernd­ar­sam­tök Íslands (NÍ) hafa sent frá sér.

Þar seg­ir að á fundi Norður­landaráðs, sem fer fram í Reykja­vík og lýk­ur síðar í dag, séu til umræðu til­lög­ur um aðgerðir til að tak­marka skaðleg áhrif lofts­lags­breyt­inga á Norður­slóðum.

„Þing Norður­landaráðs veit­ir nor­ræn­um þing­mönn­um tæki­færi til að krefja nor­rænu rík­is­stjórn­irn­ar um rót­tæk­ar aðgerðir til að draga úr los­un sóts frá sigl­ing­um á Norður­slóðum. Stjórn­laus meng­un frá bruna svartol­íu á Norður­slóðum fer vax­andi.“

Þing Norðurlandaráðs er haldið í Reykjavík.
Þing Norður­landaráðs er haldið í Reykja­vík. Norður­landaráð/​Magn­us Fröder­berg

Þá segja sam­tök­in að rík­is­stjórn­um Norður­landa „ber að hraða vinnu að sam­komu­lagi á vett­vangi Alþjóða-sigl­inga­mála­stofn­un­ar­inn­ar (IMO) um bann við notk­un mjög meng­andi skipa­eldsneyt­is. Vænt­an­lega samþykk­ir Norður­landaráð nú álykt­un sem fel­ur í sér rann­sókn og samn­ingaviðræður um þetta fyr­ir næsta þing Norður­landaráðs.“

Notk­un svartol­íu hef­ur verið heim­il með því skil­yrði að skip nota búnað sem hreins­ar út­blást­ur þeirra. Hins veg­ar hef­ur komið í ljós að mörg skip skola meng­un­ina út í sjó­inn og hafa fleiri ríki ákveðið að banna notk­un slíks búnaðar al­farið eða á af­mörkuðum hafsvæðum.

Krefjast ráðstaf­anna strax

Benda NÍ á að alþjóðlegu regn­hlíf­ar­sam­tök­in Cle­an Arctic Alli­ance, sem NÍ á aðild að, telja brýnt að all­ar nor­rænu rík­is­stjórn­irn­ar grípi til aðgerða heima­fyr­ir og banni strax bruna og flutn­ing svartol­íu inn­an 12 mílna land­helgi ríkj­anna. „Nátt­úru­vernd­ar­sam­tök Íslands hafa ít­rekað komið þeim skila­boðum á fram­færi við stjórn­völd.“

Þá skor­ar Cle­an Arctic Alli­ance á ráðherra og þing­menn Norður­landa að „gera strax ráðstaf­an­ir til að draga hratt úr meng­un frá skip­um sem sigla um Norður­slóðir ‒ og leggja áherslu á brýna nauðsyn þess að draga úr los­un sóts frá bruna svartol­íu. Áhrif sóts eru skamm­vinn en mik­il og valda örri bráðnun íss og jökla á Norður­slóðum og hraðar hlýn­un. Bann við bruna svartol­íu er fljót­virk­asta leiðin til að hægja á þess­ari bráðnun.“

Vak­in er at­hygli á því að 44 vís­inda­menn frá fimmtán ríkj­um hafi í síðustu viku sent opið bréf til for­ystu­manna rík­is­stjórna þeirra ríkja sem eiga aðild að Nor­ræna ráðherr­aráðinu. Vöruðu þeir við „al­var­legri ógn við afar mik­il­væga hringrás í Norður-Atlants­hafi ‒ velti­hringrás Norður-Atlants­hafs­ins (AMOC) ‒ sem gæti haft skelfi­leg­ar af­leiðing­ar fyr­ir Norður­lönd. Fjór­ir ís­lensk­ir ís­lensk­ir vís­inda­menn eru á meðal þeirra sem und­ir­rituðu bréfið,“ seg­ir í yf­ir­lýs­ingu NÍ.

mbl.is