Yfir 1.000 jöklar bráðnað í landinu

Loftslagsvá | 14. nóvember 2024

Yfir 1.000 jöklar bráðnað í landinu

Meira en eitt þúsund jöklar hafa bráðnað í Tajíkistan í Mið-Asíu síðustu þrjá áratugina. Orkumálaráðherra landsins greindi frá þessu á loftslagsráðstefnunni COP29 sem fer fram í Bakú.

Yfir 1.000 jöklar bráðnað í landinu

Loftslagsvá | 14. nóvember 2024

Fjöll í Tajíkistan.
Fjöll í Tajíkistan. Ljósmynd/Wikipedia.org

Meira en eitt þúsund jökl­ar hafa bráðnað í Tajík­ist­an í Mið-Asíu síðustu þrjá ára­tug­ina. Orku­málaráðherra lands­ins greindi frá þessu á lofts­lags­ráðstefn­unni COP29 sem fer fram í Bakú.

Meira en eitt þúsund jökl­ar hafa bráðnað í Tajík­ist­an í Mið-Asíu síðustu þrjá ára­tug­ina. Orku­málaráðherra lands­ins greindi frá þessu á lofts­lags­ráðstefn­unni COP29 sem fer fram í Bakú.

Þúsund­ir jökla víðs veg­ar um Mið-Asíu eru mik­il­væg­ir þegar kem­ur að mat­væla- og vatns­ör­yggi.

„Síðustu 30 árin hafa yfir 1.000 jökl­ar, af um 14 þúsund jökl­um í Tajík­ist­an, horfið. Þess­ir jökl­ar eru mik­il­væg­ir öllu svæðinu,“ sagði Dal­er Juma, ráðherra orku- og vatns­orku­mála lands­ins, í yf­ir­lýs­ingu sem var birt í gær.

„Hröð bráðnun jökla vegna lofts­lags­breyt­inga er al­var­leg ógn í alþjóðlega sam­heng­inu þegar kem­ur að við því vernda vatns­forða okk­ar,“ bætti hann við á viðburði á veg­um Kyrgyst­an, annarr­ar Mið-Asíuþjóðar sem glím­ir við bráðnandi jökla vegna hlýn­andi lofts­lags.

Vís­inda­menn Sam­einuðu þjóðanna segja að jökl­arn­ir gætu horfið al­veg í Mið-Asíu fyr­ir lok þess­ar­ar ald­ar. Það myndi leiða til al­var­legs vatns­skorts á svæðinu, þar sem um 80 millj­ón­ir manna búa.

mbl.is