Nýr Hákon stórglæsilegur

Endurnýjun skipaflotans | 15. nóvember 2024

Nýr Hákon stórglæsilegur

Hákon ÞH-250, nýtt uppsjávarskip Gjögurs, vekur athygli hvert sem það kemur enda stór glæsilegt. Hafa verið teknar af því fjölda mynda og hefur Hjálmar Sigurðsson birt myndband af því er skipið sótti á dögunum Eskifjörð heim þar sem fengin voru veiðarfæri hjá Egersund.

Nýr Hákon ÞH þykir stórglæsilegt uppsjávarskip.
Nýr Hákon ÞH þykir stórglæsilegt uppsjávarskip. mbl.is/Hafþór Hreiðarsson

Hákon ÞH-250, nýtt uppsjávarskip Gjögurs, vekur athygli hvert sem það kemur enda stór glæsilegt. Hafa verið teknar af því fjölda mynda og hefur Hjálmar Sigurðsson birt myndband af því er skipið sótti á dögunum Eskifjörð heim þar sem fengin voru veiðarfæri hjá Egersund.

Hákon ÞH-250, nýtt uppsjávarskip Gjögurs, vekur athygli hvert sem það kemur enda stór glæsilegt. Hafa verið teknar af því fjölda mynda og hefur Hjálmar Sigurðsson birt myndband af því er skipið sótti á dögunum Eskifjörð heim þar sem fengin voru veiðarfæri hjá Egersund.

Fegurð skipsins fer ekki framhjá neinum. Sjón er sögu ríkari.

Mikill fögnuður við komu skipsins

Hákon hefur þó verið undanfarið á Höfn í Hornafirði en þar landaði skipið nýverið 933 tonnum af síld í byrjun mánaðar.

Nýsmíðin komu fyrsta sinn til landsins 27. október síðastliðinn við hátíðlegar móttökur í reykjavík, en heimahöfn Hákons er á Grenivík í Eyjafirði.

Við tilefnið tók Njáll Þorbjörnsson við endanum, en hann er stjórnarformaður Gjögurs.

Njáll Þorbjörnsson stjórnarformaður Gjögurs tók við endanum.
Njáll Þorbjörnsson stjórnarformaður Gjögurs tók við endanum. mbl.is/Hafþór Hreiðarsson
Hákon var í fullum skrúða er skipið kom til hafnar …
Hákon var í fullum skrúða er skipið kom til hafnar á Íslandi í fyrsta sinn. mbl.is/Hafþór Hreiðarsson
mbl.is/Hafþór Hreiðarsson

mbl.is