Ástfangin á toppi þekkts fjalls í Suður-Afríku

Fjallganga | 29. nóvember 2024

CrossFit-stjarnan Katrín Tanja Davíðsdóttir og kærasti hennar, Brooks Laich, fyrrverandi atvinnumaður í íshokkí, eru bæði mjög ævintýragjörn og elska að ferðast um heiminn og kynna sér ólíka menningarheima.

Katrín Tanja Davíðsdóttir og Brooks Laich.
Katrín Tanja Davíðsdóttir og Brooks Laich. Skjáskot/Instagram

CrossFit-stjarnan Katrín Tanja Davíðsdóttir og kærasti hennar, Brooks Laich, fyrrverandi atvinnumaður í íshokkí, eru bæði mjög ævintýragjörn og elska að ferðast um heiminn og kynna sér ólíka menningarheima.

CrossFit-stjarnan Katrín Tanja Davíðsdóttir og kærasti hennar, Brooks Laich, fyrrverandi atvinnumaður í íshokkí, eru bæði mjög ævintýragjörn og elska að ferðast um heiminn og kynna sér ólíka menningarheima.

Parið nýtur nú alls þess besta sem Suður-Afríka hefur upp á bjóða. Katrín Tanja og Brooks gengu á topp Table Mountain, eins þekktasta kennileitis Höfðaborgar, í morgun og deildu myndskeiði af sér að njóta útsýnisins á toppnum á Instagram.

„Bókstaflega á toppi veraldar,” skrifaði parið við færsluna sem fjölmargir hafa líkað.

Katrín Tanja og Brooks opinberuðu samband sitt í ágúst 2021 og hafa verið dugleg að fljúga á vit ævintýranna síðustu ár.

Parið átti ævintýralega daga í Indónesíu í október og heimsótti meðal annars Kómódó-eyju undan ströndum Súmötru og sáu þar kó­módó-dreka sem er stærsta núlif­andi eðla heims.

mbl.is