Frumsýndi kærustuna á rauða dreglinum

Poppkúltúr | 2. desember 2024

Frumsýndi kærustuna á rauða dreglinum

Bandaríski stórleikarinn Sean Penn mætti ásamt kærustu sinni, fyrirsætunni Valeriu Nicov, á alþjóðlegu kvikmyndahátíðina í Marrakech á laugardagskvöldið. Þetta er í fyrsta sinn sem parið gengur hönd í hönd niður rauða dregilinn.

Frumsýndi kærustuna á rauða dreglinum

Poppkúltúr | 2. desember 2024

Parið var afar glæsilegt á rauða dreglinum.
Parið var afar glæsilegt á rauða dreglinum. Ljósmynd/AFP

Bandaríski stórleikarinn Sean Penn mætti ásamt kærustu sinni, fyrirsætunni Valeriu Nicov, á alþjóðlegu kvikmyndahátíðina í Marrakech á laugardagskvöldið. Þetta er í fyrsta sinn sem parið gengur hönd í hönd niður rauða dregilinn.

Bandaríski stórleikarinn Sean Penn mætti ásamt kærustu sinni, fyrirsætunni Valeriu Nicov, á alþjóðlegu kvikmyndahátíðina í Marrakech á laugardagskvöldið. Þetta er í fyrsta sinn sem parið gengur hönd í hönd niður rauða dregilinn.

Penn, sem er tvöfaldur Óskarsverðlaunahafi, var heiðraður fyrir framúrskarandi framlag sitt til kvikmynda og leiklistar á hátíðinni.

Penn, 60 ára, og Nicov, 30 ára, litu út fyrir að vera yfir sig ástfangin og tóku vart augun hvort af öðru allt kvöldið. Samband þeirra er afar nýtt af nálinni, en það hefur engu að síður náð að vekja talsverða eftirtekt, sérstaklega sökum aldursmunar.

Penn er þrískil­inn og tveggja barna faðir.

Hann kvænt­ist söng­kon­unni Madonnu árið 1985 og skildi við hana fjór­um árum síðar. Leik­ar­inn gekk í hjóna­band með Robin Wright árið 1996 og var gift­ur henni til árs­ins 2010. Þau eiga tvö upp­kom­in börn.

Síðar kvænt­ist hann áströlsku leik­kon­unni Leilu Geor­ge en þau voru gift í tvö ár, frá 2020 til 2022. Geor­ge er á svipuðum aldri og börn Penn en Nicov er yngri en börn leik­ar­ans.

mbl.is