Stjörnurnar fjölmenntu á rauða dregilinn á bresku tískuverðlaunahátíðinni (e. The Fashion Awards) sem fór fram í Royal Albert Hall í Lundúnum á mánudagskvöldið. Leikkonan Julia Fox lét sig að sjálfsögðu ekki vanta og vakti mikla athygli á dreglinum, eins og oft áður, í afar efnislitlum kjól.

Fox, 34 ára, er þekkt fyrir að stela sviðsljósinu hvar sem hún stígur niður fæti, enda óhrædd að fara sínar eigin leiðir þegar kemur að fatavali. Leikkonan klæðir sig gjarnan í ögrandi, undarlegar og efnislitlar flíkur sem fá viðstadda til að gapa af undrun.
Fox mætti á verðlaunahátíðina íklædd gegnsæjum kjól frá tískuhönnuðinum Dilara Findikoglu. Nýjasta fatalína merkisins leggur höfuðáherslu á kvenlega orku og línur sem kemur vel fram í korseletti kjólsins.