Eftir einstaklega vel heppnaðan viðburð í fyrra þar sem fólki gafst kostur á að velja sína uppáhaldskonfektmola í kassa ætla Nói Síríus og Hagkaup að endurtaka leikinn. Fyrirtækin ætla að bjóða viðskiptavinum að velja uppáhaldsmolana sína í konfektkassa aðeins þennan eina dag, laugardaginn 7. desember næstkomandi í Hagkaup Smáralind.

„Nóa konfekt er fyrir löngu orðið ómissandi hluti af jólahefðum stórs hluta þjóðarinnar, enda snúast jólin að miklu leyti um hefðir og hátíðleika. Þá er það einnig orðin venja hjá ansi mörgum að stelast í konfektkassann við hin ýmsu tækifæri, því öll eigum við okkar uppáhaldsmola. Nú gefst fólki tækifæri á að velja eingöngu uppáhaldsmolana í konfektkassa fyrir sjálft sig eða þau sem standa hjarta þess næst,“ segir Anna Fríða Gísladóttir, framkvæmdastjóri markaðssviðs Nóa Síríus
Prufukeyrt fyrir jólin 2023
„Við erum virkilega ánægð að geta boðið viðskiptavinum okkar upp á að velja sína uppáhalds Nóa Síríus konfektmola fyrir jólin. Þetta samstarfsverkefni með Nóa Síríus var prufukeyrt fyrir jólin 2023 og gekk vel, svo það er sannarlega gaman að fá að taka þátt í þessu aftur í ár,“ segir Lilja Björg Gísladóttir sérfræðingur markaðsmála hjá Hagkaup og bætir aðsóknin hafi farið fram úr vonum í fyrra og eftirspurnin hafi verið mikil.
„Fólk flykktist í verslun okkar í Smáralind fyrir síðustu jól til þess að velja sér mola og við fengum fyrirspurnir um að endurtaka leikinn í þó nokkra daga á eftir. Það verður því spennandi að sjá hvernig aðsóknin verður í ár en við erum tilbúin að taka á móti súkkulaðiunnendum landsins í Hagkaup Smáralind á laugardaginn.“
„Á laugardaginn mun starfsfólk Nóa Síríus taka vaktina í Hagkaup, og það er mikil tilhlökkun hjá okkur að bjóða viðskiptavinum upp á þessa þjónustu og komust færri frá okkur að en vildu,“ segir Anna Fríða.
Aðspurð hvaða moli sé vinsælastur segir Anna Fríða að það sé mismunandi á milli einstaklinga. „Sumir einstaklingar eru marsipa megin í lífinu á meðan aðrir kjósa fyllta mola.
Á laugardaginn gefst fólki því möguleiki á að búa til sérsniðinn konfektkassa úr íslensku gæðasúkkulaði enda fátt fallegra en að gefa sérsniðna gjöf handa þeim sem þér þykir vænt um,“ bætir hún við.
„Fyrst og fremst erum við þó þakklát fyrir þann heiður að spila jafn stórt hlutverk í hátíðarhöldum landsmanna og sérstaklega er gaman að sjá hversu mörg okkar eiga sinn uppáhalds konfektmola.“
Aðeins verður hægt að kaupa sérvalið Nóa Konfekt í Hagkaup Smáralind laugardaginn 7. desember næstkomandi á milli klukkan 12.00 og 16.00.