Vilhjálmur Birgisson, formaður Verkalýðsfélags Akraness, er kampakátur með ákvörðun Bjarna Benediktssonar um að veita leyfi til veiða á langreyðum auk leyfis til veiða á hrefnu til fimm ára.

„Þetta eru gríðarlega jákvæð tíðindi enda hið eina rétta í stöðunni, enda eru í gildi lög um hvalveiðar. Það skiptir máli að íslenskt samfélag átti sig á því að það er með aukinni verðmætasköpun sem við náum að viðhalda velferð og auka velferð,“ segir Vilhjálmur.
Bjarni Benediktsson, starfandi matvælaráðherra, gaf út leyfi til veiða á langreyðum til Hvals hf. auk leyfis til veiða á hrefnu til tog- og hrefnuveiðibátsins Halldórs Sigurðssonar ÍS 14, sem er í eigu félagsins Tjaldtanga.
Vilhjálmur segir að Hvalur hf. hafi skilað 21 milljarði króna í útflutningstekjur núvirt frá árinu 2010. Þessar tekjur hafi að stórum hluta orðið eftir í nærsamfélaginu á Akranesi.
Hann segir að þetta séu gríðarlega jákvæðar fréttir og nefnir að yfir hvalveiðivertíð, sem varir í um fjóra mánuði, gefist verkamönnum mjög góðir tekjumöguleikar.
„Þetta eru meðallaun sem eru svona í kringum eina og hálfa milljón hjá verkamanni. Vissulega er mikið vinnuframlag en þetta eru góðir tekjumöguleikar og þetta skiptir okkur hér gríðarlega miklu máli. Ég tala nú ekki um þau nærsamfélög sem hafa miklar og góðar útsvarstekjur af þessum störfum,“ segir Vilhjálmur.