Hefði hugsanlega átt að veita leyfið fyrr

Hvalveiðar | 6. desember 2024

Hefði hugsanlega átt að veita leyfið fyrr

Sigurður Ingi Jóhannsson, formaður Framsóknarflokksins, gerir ekki athugasemd við veitingu hvalveiðileyfis. Hann segir þó að hugsanlega hefði mátt veita það fyrr.

Hefði hugsanlega átt að veita leyfið fyrr

Hvalveiðar | 6. desember 2024

Sigurður Ingi Jóhannsson fjármálaráðherra að loknum fundi starfsstjórnarinnar í dag.
Sigurður Ingi Jóhannsson fjármálaráðherra að loknum fundi starfsstjórnarinnar í dag. mbl.is/Karítas

Sig­urður Ingi Jó­hanns­son, formaður Fram­sókn­ar­flokks­ins, ger­ir ekki at­huga­semd við veit­ingu hval­veiðileyf­is. Hann seg­ir þó að hugs­an­lega hefði mátt veita það fyrr.

Sig­urður Ingi Jó­hanns­son, formaður Fram­sókn­ar­flokks­ins, ger­ir ekki at­huga­semd við veit­ingu hval­veiðileyf­is. Hann seg­ir þó að hugs­an­lega hefði mátt veita það fyrr.

Þetta seg­ir Sig­urður i sam­tali við mbl.is að rík­is­stjórn­ar­fundi lokn­um.

Bjarni Bene­dikts­son, starf­andi mat­vælaráðherra, gaf í gær út leyfi til veiða á langreyðum til Hvals hf. auk leyf­is til veiða á hrefnu til tog- og hrefnu­veiðibáts­ins Hall­dórs Sig­urðsson­ar ÍS 14, sem er í eigu fé­lags­ins Tjald­tanga.

Styðja hval­veiðar

„Við í Fram­sókn styðjum að við nýt­um okk­ar rétt til að veiða með sjálf­bær­um hætti hvali eins og aðrar auðlind­ir sjáv­ar. Þannig ég geri ekki at­huga­semd við það,“ seg­ir hann. 

Hann seg­ir for­dæmi vera fyr­ir því að ákv­arðanir um hval­veiðar séu tekn­ar í starfs­stjórn og nefn­ir hann að það hafi gerst árið 2009 og 2017. 

Ger­ir ekki at­huga­semd við það að vera með virkt leyfi

Spurður hvort að það hefði átt að bíða þar til ný rík­is­stjórn tæki við seg­ir Sig­urður:

„Ég geri bara ekki at­huga­semd við það að við séum með virkt hval­veiðileyfi og það hefði kannski átt að vera búið að veita það fyrr,“ seg­ir Sig­urður. 

mbl.is