Ísland í þriðja sæti yfir friðsælustu áfangastaði heims

Á ferðalagi | 6. desember 2024

Ísland í þriðja sæti yfir friðsælustu áfangastaði heims

Ástralía er talinn friðsælasti áfangastaður í heiminum í dag. Nokkur af þeim löndum sem áður komust á listann, t.d. Frakkland, Spánn, Ítalía og Tyrkland, glíma nú við ofurferðamennsku og leita ferðamenn því á ný mið til að upplifa rólegheitafrí.

Ísland í þriðja sæti yfir friðsælustu áfangastaði heims

Á ferðalagi | 6. desember 2024

Ísland góða Ísland.
Ísland góða Ísland. Samsett mynd/Jonathan Gallegos/Jonny Auh

Ástralía er talinn friðsælasti áfangastaður í heiminum í dag. Nokkur af þeim löndum sem áður komust á listann, t.d. Frakkland, Spánn, Ítalía og Tyrkland, glíma nú við ofurferðamennsku og leita ferðamenn því á ný mið til að upplifa rólegheitafrí.

Ástralía er talinn friðsælasti áfangastaður í heiminum í dag. Nokkur af þeim löndum sem áður komust á listann, t.d. Frakkland, Spánn, Ítalía og Tyrkland, glíma nú við ofurferðamennsku og leita ferðamenn því á ný mið til að upplifa rólegheitafrí.

Þótt Ástralía vermi toppinn eru mörg Norður-Evrópulönd, þ.á.m Ísland, ofarlega á listanum og skáka þar með hlýrri löndum Suður-Evrópu.

Norðurljósadýrð á Finnlandi.
Norðurljósadýrð á Finnlandi. Stas Haas/Unsplash

Yfir 76 áfangastaðir voru greindir og raðaðir á listann eftir svokallaðri Global Relaxation Index, sem felur í sér fimm lykilþætti: Öryggi, tækifæri til einveru, stöðugleika, náttúru og almenna vellíðan.

Lykilatriðin fimm voru metin út frá verndarsvæðum, skóglendi, mannfjölda á hvern ferkílómetra, hávaðamengun og framboði á vellíðunarupplifunum. Hver áfangastaður fékk síðan einkunn á bilinu einn upp í hundrað.

Grinda í Svíþjóð.
Grinda í Svíþjóð. Inès d'Anselme/Unsplash
Sjö af tíu mest afslappandi áfangstöðum heims eru sagðir vera …
Sjö af tíu mest afslappandi áfangstöðum heims eru sagðir vera í Evrópu. Linus Mimietz/Unsplash

Löndin á listanum

Ísland fær nánast fullt hús stiga er varðar öryggi og stöðugleika og lendir í þriðja sæti á listanum. 

Finnland er næst á eftir eða í fjórða sæti. Landið deilir viðmiðum um dreifingu mannfjölda, undir 20 manns á hvern ferkílómetra, með Íslandi.

Löndin tvö eru í algjörri andstöðu við Ítalíu sem er með um 198 manns á hvern ferkílómetra og Máritíus með 626 manns á hvern ferkílómetra.

Aðrir „afslappandi“ áfangastaðir eru Austurríki í sjötta sæti, Svíþjóð í sjöunda sæti, Eistland í áttunda sæti, Noregur í níunda sæti og Portúgal í tíunda sæti, fyrir grænar borgir, hægan lífsstíl og mikið um vellíðunarhefðir.

Bergen í Noregi.
Bergen í Noregi. Michael Fousert/Unsplash

Spánn endar í 16. sæti og Frakkland í því 33.

Kanada er í öðru sæti og eini áfangastaður Norður-Ameríku á topp 25. Það er vegna 4.700 möguleika í vellíðunarupplifun og vegna þá staðreyndar að um 35% skógur þekur landið og náttúruundra á borð við norðurljósin.

Þá segir jafnframt að þau lönd sem áður voru vinsæl hafi drukknað í eigin vinsældum og ofurferðamennsku.

Ferðalög með slökun að markmiði eru talin verða áfram vinsæl árið 2025 þegar fleiri ferðamenn sækja í ósnortna náttúru og afslappað umhverfi.

Stokkhólmur í Svíþjóð.
Stokkhólmur í Svíþjóð. Raphael Andres/Unsplash
Lofoten-eyjar í Noregi
Lofoten-eyjar í Noregi Valdemaras D./Unsplash

Euro News

mbl.is