Nauðsynlegt að draga Assad til ábyrgðar

Sýrland | 9. desember 2024

Nauðsynlegt að draga Assad til ábyrgðar

Volker Turk, mannréttindafulltrúi Sameinuðu þjóðanna, segir að við þær pólitísku breytingar sem séu að eiga sér stað í Sýrlandi, þar sem Bashar al-Assad Sýrlandsforseta hefur verið steypt af stóli, þá verði að gera upp þá glæpi og mannréttindabrot sem hann og aðrir undir hans stjórn bera ábyrgð á.

Nauðsynlegt að draga Assad til ábyrgðar

Sýrland | 9. desember 2024

Sýrlenskir uppreisnarmenn veifa fána ofan á skriðdreka í Damaskus í …
Sýrlenskir uppreisnarmenn veifa fána ofan á skriðdreka í Damaskus í dag. AFP

Volker Turk, mann­rétt­inda­full­trúi Sam­einuðu þjóðanna, seg­ir að við þær póli­tísku breyt­ing­ar sem séu að eiga sér stað í Sýr­landi, þar sem Bash­ar al-Assad Sýr­lands­for­seta hef­ur verið steypt af stóli, þá verði að gera upp þá glæpi og mann­rétt­inda­brot sem hann og aðrir und­ir hans stjórn bera ábyrgð á.

Volker Turk, mann­rétt­inda­full­trúi Sam­einuðu þjóðanna, seg­ir að við þær póli­tísku breyt­ing­ar sem séu að eiga sér stað í Sýr­landi, þar sem Bash­ar al-Assad Sýr­lands­for­seta hef­ur verið steypt af stóli, þá verði að gera upp þá glæpi og mann­rétt­inda­brot sem hann og aðrir und­ir hans stjórn bera ábyrgð á.

Þetta sagði Turk við blaðamenn í Genf í Sviss í dag.

Hann seg­ir nauðsyn­legt að gögn­um verði safnað sam­an og þau varðveitt. Hann seg­ir að Assad og aðrir hátt­sett­ir emb­ætt­is­menn séu grunaðir um ódæðis­verk í valdatíð sinni.

Volker Turk.
Volker Turk. AFP/​Khaled Desouki

Stjórn­in féll á 11 dög­um

Assad flúði til Rúss­lands eft­ir að sveit­ir íslamskra upp­reisn­ar­manna nálguðust höfuðborg­ina Dam­askus. Falli ein­ræðis­stjórn­ar Assads var fagnað víða um landið en hann stjórnaði land­inu með harðri hendi.

Rík­is­stjórn Assads féll aðeins 11 dög­um eft­ir að upp­reisn­ar­menn­irn­ir hófu að sækja fram í land­inu, sem kom flest­um að óvör­um. Árið 2011 brut­ust út mót­mæli í Sýr­landi sem beind­ust gegn stjórn­völd­um sem leiddu til borg­ara­styrj­ald­ar. Und­an­far­in ár hef­ur ástandið verið nokkuð stöðugt, eða þar til nú.

Landsmenn hafa fagnað falli Assads forseta.
Lands­menn hafa fagnað falli Assads for­seta. AFP

Hálf millj­ón lát­ist af völd­um stríðsátaka

Á þess­um 13 árum hafa yfir 500.000 manns látið lífið og hef­ur um helm­ing­ur þjóðar­inn­ar flúið heim­ili sín.

Turk seg­ir að al­var­leg­ustu mann­rétt­inda­brot­in varði pynt­ing­ar og notk­un efna­vopna.

Turk von­ast til þess að þessi snöggu um­skipti leiði til já­kvæðra breyt­inga í land­inu og að yf­ir­völd geti byggt framtíð á grund­velli mann­rétt­inda, frels­is og rétt­læt­is.

Hann bætti við að það væri mik­il­vægt að taka skipu­lag ör­ygg­is­mála al­gjör­lega í gegn í land­inu.

mbl.is