Stöðva umsóknir frá Sýrlandi og undirbúa brottflutning

Sýrland | 9. desember 2024

Stöðva umsóknir frá Sýrlandi og undirbúa brottflutning

Þýskaland, Austurríki og Bretland hafa ákveðið að fresta eða stöðva umsóknir frá flóttafólki frá Sýrlandi vegna óljósrar stöðu í Sýrlandi eftir að Bashar al-Assad var steypt af stóli eftir að fjölskylda hans hafði stjórnað landinu með harðri hendi í yfir hálfa öld. Kanslari Austurríkis hefur skipað ráðuneyti sínu að undirbúa brottvísun Sýrlendinga aftur til Sýrlands.

Stöðva umsóknir frá Sýrlandi og undirbúa brottflutning

Sýrland | 9. desember 2024

Sýrlendingar í Vín í Austurríki fagna valdalokum Assads með fánum …
Sýrlendingar í Vín í Austurríki fagna valdalokum Assads með fánum andstöðunnar og fána Austurríkis. AFP/Max Slovencik

Þýska­land, Aust­ur­ríki og Bret­land hafa ákveðið að fresta eða stöðva um­sókn­ir frá flótta­fólki frá Sýr­landi vegna óljósr­ar stöðu í Sýr­landi eft­ir að Bash­ar al-Assad var steypt af stóli eft­ir að fjöl­skylda hans hafði stjórnað land­inu með harðri hendi í yfir hálfa öld. Kansl­ari Aust­ur­rík­is hef­ur skipað ráðuneyti sínu að und­ir­búa brott­vís­un Sýr­lend­inga aft­ur til Sýr­lands.

Þýska­land, Aust­ur­ríki og Bret­land hafa ákveðið að fresta eða stöðva um­sókn­ir frá flótta­fólki frá Sýr­landi vegna óljósr­ar stöðu í Sýr­landi eft­ir að Bash­ar al-Assad var steypt af stóli eft­ir að fjöl­skylda hans hafði stjórnað land­inu með harðri hendi í yfir hálfa öld. Kansl­ari Aust­ur­rík­is hef­ur skipað ráðuneyti sínu að und­ir­búa brott­vís­un Sýr­lend­inga aft­ur til Sýr­lands.

Eft­ir að borg­ara­stríð braust út í Sýr­landi fyr­ir rúm­lega ára­tug flúði mik­ill fjöldi Sýr­lend­inga til Evr­ópu. Um ein millj­ón þeirra fór til Þýska­lands og um 100 þúsund til Aust­ur­rík­is. Bíða þúsund­ir Sýr­lend­inga þess að um­sókn­ir þeirra um hæli í lönd­un­um tveim­ur verði af­greidd­ar.

Fresta ákvörðunum vegna óljósr­ar stöðu

Inn­an­rík­is­ráðherra Þýska­lands seg­ir að enda­lok valdatíðar ein­valds­ins Assads séu létt­ir fyr­ir mik­inn fjölda fólks sem hef­ur sætt pynd­ing­um, morðum og hryll­ingi und­ir hans stjórn. Þá sagði ráðherr­ann, Nancy Faeser, að marg­ir þeirra sem hafi fundið skjól í Þýskalandi hafi nú loks­ins von um að geta snúið aft­ur heim og tekið þátt í upp­bygg­ingu heima­lands­ins.

Hún tók hins veg­ar fram að aðstæður í Sýr­landi væru enn mjög óljós­ar. Sagði hún því að ekki væri hægt að áætla strax um fjölda þeirra sem myndu snúa aft­ur.

Í ljósi þeirr­ar óvissu sem er uppi sagði Faeser að ráðuneyti inn­flytj­enda hefði ákveðið að fresta öll­um ákvörðunum í mál­efn­um hæl­is­leit­enda meðan staðan myndi skýr­ast bet­ur.

Sam­kvæmt op­in­ber­um töl­um í Þýskalandi búa nú 974 þúsund Sýr­lend­ing­ar í Þýskalandi. Af þeim hafa 5.090 fengið hæli í land­inu, rúm­lega 321 þúsund fengið stöðu flótta­fólks og um 329 þúsund hafa fengið tíma­bundna vernd. Tug­ir þúsunda bíða hins veg­ar þess að mál þeirra verði tekið fyr­ir.

Sýrlendingar í Berlín í Þýskalandi fögnuðu um helgina að stjórn …
Sýr­lend­ing­ar í Berlín í Þýskalandi fögnuðu um helg­ina að stjórn Assads væri fall­in. Tæp­lega millj­ón Sýr­lend­ing­ar búa nú í Þýskalandi. AFP/​Ralf Hirsch­ber­ger

Aust­ur­rík­is­menn und­ir­búa brott­flutn­ing

Í Aust­ur­ríki til­kynnti kansl­ar­inn Karl Nehammer að ákveðið hefði verið að stöðva all­ar sýr­lensk­ar um­sókn­ir um hæli í land­inu. Þess í stað hefði hann skipað inn­an­rík­is­ráðuneyti lands­ins að und­ir­búa brott­vís­un­ar­ferli fyr­ir Sýr­lend­inga.

Sér­stak­ar fjöl­skyldusam­ein­ing­ar hafa einnig verið sett­ar á ís, en þar er átt við að fólk sem þegar hef­ur fengið hæli í Aust­ur­ríki geti ekki leng­ur sótt um að fjöl­skylda þeirra fái einnig hæli í land­inu.

Hafa þessi fyr­ir­mæli áhrif á um 7.300 um­sókn­ir sem höfðu komið inn á borð ráðuneyt­is­ins.  

mbl.is