Svandís Svavarsdóttir formaður Vinstri grænna lætur ekkert stoppa sig og fór á tónleika með Paul McCartney sem haldnir voru í París í vikunni.

Bítillinn fyrrverandi er á ferð um Evrópu á tónleikaferð sem hann kallar „Phenomenal Got Back tour“. Á tónleikaferðinni tekur hann sína allra vinsælustu smelli eins og Hey Jude, Live and Let Die og Let It Be.
Svandís og flokksfélagar hennar í Vinstri grænum þurrkuðust nánast út í kosningum sem fram fóru hérlendis 30. nóvember og komust ekki inn á þing. Og fengu ekki ríkisstyrk í kjölfarið.
Alvöru kjarnakonur gefast ekki upp þótt þær séu með vindinn í fanginu og það veit Svandís manna best. Einhver myndi segja að það gáfulegasta í stöðunni væri að fá hlýja tóna inn í hjartað á tímum sem þessum.
Á miðvikudaginn í síðustu viku var Svandísi boðið að vera gestur í Iðnó þegar Ólöf Skaftadóttir og Kristín Gunnarsdóttir, sem stýra Komið gott hlaðvarpinu, voru með lifandi hlaðvarpsþátt uppi á sviði. Þar kom fram að Svandís hefði afþakkað boðið þar sem hún var við það að opna kampavínsflösku númer tvö. Það má.