Tónlistarmaðurinn Helgi Björnsson opnaði sýningu á textaverkum sínum í gær í verslun Kölska við Síðumúla. Verkin innihalda ódauðlega lagatexta sem hafa fylgt þjóðinni síðustu 30 ár eða svo.

„Geta pabbar ekki grátið“, „Við eigum heiminn og allt sem í honum er“, „Vertu þú sjálfur“, „Síðan hittumst við aftur“ eru setningar sem fólk þekkir úr dægurlagaheimi síðustu ára.
Verkin eru handskrifuð af Helga Björns og koma í takmörkuðu upplagi. Þau eru innrömmuð og koma í tveimur stærðum.
Vel var mætt á opnunina þar sem vinir og aðdáendur Helga fögnuðu með honum.