„Íslensk ferðaþjónusta verði þekkt fyrir gæði og einstaka upplifun“

Á ferðalagi | 12. desember 2024

„Íslensk ferðaþjónusta verði þekkt fyrir gæði og einstaka upplifun“

Samkvæmt tillögu til þingsályktunar sem samþykkt var á Alþingi í júní er gert ráð fyrir að rekin verði arðsöm og samkeppnishæf ferðaþjónusta sem starfi í sátt við land og þjóð, líkt og fram kemur í upplýsingum frá Ferðamálastofu.

„Íslensk ferðaþjónusta verði þekkt fyrir gæði og einstaka upplifun“

Á ferðalagi | 12. desember 2024

Markmið ferðamálastefnu er að tryggja framtíðarsýn í ferðaþjónustu hérlendis.
Markmið ferðamálastefnu er að tryggja framtíðarsýn í ferðaþjónustu hérlendis. Samsett mynd

Sam­kvæmt til­lögu til þings­álykt­un­ar sem samþykkt var á Alþingi í júní er gert ráð fyr­ir að rek­in verði arðsöm og sam­keppn­is­hæf ferðaþjón­usta sem starfi í sátt við land og þjóð, líkt og fram kem­ur í upp­lýs­ing­um frá Ferðamála­stofu.

Þetta er hluti af ferðamála­stefnu og aðgerðaáætl­un til 2030 og verður tekið til­lit til fram­kvæmd­ar­inn­ar við gerð fjár­laga hvers árs og í fimm ára fjár­mála­áætl­un.

Aðgerðaáætl­un verður upp­færð á tveggja ára fresti fram til 2030. Á sama tíma verður unnið að gerð skil­greindra mæli­kv­arða sem ná yfir fjór­ar lyk­il­stoðir stefn­unn­ar: Efna­hag, sam­fé­lag, um­hverfi og gesti.

Þá kem­ur einnig fram í upp­lýs­ing­un­um að framtíðar­sýn ferðaþjón­ust­unn­ar feli í sér að vera leiðandi í sjálf­bærri þróun, að rek­in verði arðsöm og sam­keppn­is­hæf ferðaþjón­usta og að ferðaþjón­ust­an sé stoð í bætt­um lífs­kjör­um og hag­sæld hér­lend­is.

Mark­mið ferðamála­stefn­unn­ar er að tryggja framtíðar­sýn í ferðaþjón­ustu hér­lend­is. „Íslensk ferðaþjón­usta verði þekkt fyr­ir gæði og ein­staka upp­lif­un.“

mbl.is