Rapparinn Daniil kominn með kærustu

Ný pör | 17. desember 2024

Rapparinn Daniil kominn með kærustu

Tónlistarmaðurinn Daníel Moroshkin, betur þekktur sem Daniil, sem síðustu ár hefur verið einn vinsælasti rappari landsins, er genginn út. Sú heppna heitir Ingibjörg Rafnsdóttir og ljóst er að ástin blómstrar hjá unga parinu.

Rapparinn Daniil kominn með kærustu

Ný pör | 17. desember 2024

Rapparinn Daniil og kærastan hans Ingibjörg að krútta yfir sig.
Rapparinn Daniil og kærastan hans Ingibjörg að krútta yfir sig. Ljósmynd/Aðsend

Tón­list­armaður­inn Daní­el Moros­hk­in, bet­ur þekkt­ur sem Daniil, sem síðustu ár hef­ur verið einn vin­sæl­asti rapp­ari lands­ins, er geng­inn út. Sú heppna heit­ir Ingi­björg Rafns­dótt­ir og ljóst er að ást­in blómstr­ar hjá unga par­inu.

Tón­list­armaður­inn Daní­el Moros­hk­in, bet­ur þekkt­ur sem Daniil, sem síðustu ár hef­ur verið einn vin­sæl­asti rapp­ari lands­ins, er geng­inn út. Sú heppna heit­ir Ingi­björg Rafns­dótt­ir og ljóst er að ást­in blómstr­ar hjá unga par­inu.

Ingi­björg er ný­út­skrifuð úr Há­skóla Íslands með BS-gráðu í fjár­mála­hag­fræði og starfar nú hjá Lands­bank­an­um. Daní­el, sem hef­ur verið á toppn­um í ís­lensku rapp­sen­unni und­an­far­in ár, virðist hafa fundið sinn full­komna takt í líf­inu – að þessu sinni í ást­inni.

Mynd frá útskriftinni hennar Ingibjargar í sumar.
Mynd frá út­skrift­inni henn­ar Ingi­bjarg­ar í sum­ar. Ljós­mynd/​In­sta­gram

Hófst allt með skila­boðunum „sæt­ust“

Parið kynnt­ist í gegn­um sam­fé­lags­miðla sum­arið 2023, eins og úr nú­tíma­legri ástar­sögu.

Það var Daní­el sem tók fyrsta skrefið og ákvað að senda Ingi­björgu skila­boð á In­sta­gram. Skila­boðin voru ein­föld en áhrifa­rík – aðeins „sæt­ust“. Hvernig sem á það er litið, þá sýn­ir þessi upp­hafspunkt­ur að stund­um þarf ekki meira en eitt orð til að kveikja neist­ann.

Út frá þess­um fyrstu sam­skipt­um hóf­ust spjöll þeirra, sem leiddu til þess að í októ­ber sama ár voru þau far­in að stinga sam­an nefj­um, eins og sagt er.

Parið á stefnumóti fyrr á dögunum.
Parið á stefnu­móti fyrr á dög­un­um. Ljós­mynd/​Aðsend

Hún spurði hann

Það var Ingi­björg sem tók næsta skref. Í sam­tali við Smart­land seg­ir hún að í apríl á þessu ári hafi hún ákveðið að taka mál­in í sín­ar eig­in hend­ur og spurði Daní­el ein­fald­lega hvort hann vildi verða kærast­inn henn­ar. Daní­el svaraði auðvitað ját­andi því þegar rétta mann­eskj­an spyr er svarið aug­ljóst.

Parið að njóta góðs af hvort öðru.
Parið að njóta góðs af hvort öðru. Ljós­mynd/​Aðsend

Ungt og metnaðarfullt par

Bæði eru þau fædd árið 2001; Ingi­björg þann 27. des­em­ber og Daní­el, aðeins þrem­ur dög­um síðar, þann 30. des­em­ber. Daní­el er ís­lensk-rúss­nesk­ur rapp­ari sem ólst upp í Árbæn­um og tal­ar bæði ís­lensku og rúss­nesku.

Á ferli sín­um hef­ur Daní­el átt ófá lög sem hafa slegið í gegn, þar á meðal EF ÞEIR VILJA BEEF, Elska og Stór Audi. Þessi lög hafa gert hann að lyk­il­manni í ís­lensku rapp­sen­unni og sannað að Daní­el á sinn sess á toppn­um. Nú er hann hins veg­ar ekki bara á toppn­um í tón­list­inni held­ur einnig í ástar­líf­inu.

mbl.is