Tartalettur með jólahangikjötinu bragðast vel

Uppskriftir | 27. desember 2024

Tartalettur með jólahangikjötinu bragðast vel

Berglind Hreiðars hjá Gotterí og gersemar er iðin við að nýta jólaafgangana og gerði þessar dásamlegu tartalettur með hangikjöti. Það eru nefnilega oft til afgangar eftir jólamatarboðin og þá er lag að nýta þá í góða rétti.

Tartalettur með jólahangikjötinu bragðast vel

Uppskriftir | 27. desember 2024

Tartalettur með hangikjöti eru ómótstæðilega góðar og upplagt er að …
Tartalettur með hangikjöti eru ómótstæðilega góðar og upplagt er að nýta afganginn af kjötinu á þennan hátt. Ljósmynd/Berglind Hreiðars

Berglind Hreiðars hjá Gotterí og gersemar er iðin við að nýta jólaafgangana og gerði þessar dásamlegu tartalettur með hangikjöti. Það eru nefnilega oft til afgangar eftir jólamatarboðin og þá er lag að nýta þá í góða rétti.

Berglind Hreiðars hjá Gotterí og gersemar er iðin við að nýta jólaafgangana og gerði þessar dásamlegu tartalettur með hangikjöti. Það eru nefnilega oft til afgangar eftir jólamatarboðin og þá er lag að nýta þá í góða rétti.

Þetta er ein snilldarleiðin til þess að nýta afganga af hangikjötinu og meðlætinu ef vill.

Tartalettur með hangikjöti

10 stykki

  • 10 tartalettur
  • 200 g hangikjöt eða eftir smekk
  • 100 g grænar baunir eða eftir smekk
  • 100 g soðnar kartöflur, má sleppa
  • 150 g þykkur jafningur/uppstúfur
  • Rifinn ostur

Aðferð:

  1. Hitið ofninn í 180°C.
  2. Notið afgangssneiðar af hangikjöti og skerið í litla bita.
  3. Skerið kartöflurnar ef þið kjósið að vera með þær, einnig í litla bita og blandið næst öllu saman með sleikju nema ostinum.
  4. Fyllið tartaletturnar með hangikjötsblöndu, setjið vel af rifnum osti yfir og bakið í ofninum í 15-18 mínútur eða þar til osturinn fer að gyllast.
  5. Berið fram og njótið.
mbl.is