Fimm ákærðir vegna andláts Liam Payne

Poppkúltúr | 30. desember 2024

Fimm ákærðir vegna andláts Liam Payne

Fimm hafa verið ákærðir í tengslum við andlát breska tónlistarmannsins Liam Payne. Hann lést þann 16. október síðastliðinn eft­ir að hafa fallið niður af þriðju hæð á hót­eli í borginni Bu­enos Aires í Arg­entínu.

Fimm ákærðir vegna andláts Liam Payne

Poppkúltúr | 30. desember 2024

Liam Payne.
Liam Payne. AFP/Angela Weiss

Fimm hafa verið ákærðir í tengslum við andlát breska tónlistarmannsins Liam Payne. Hann lést þann 16. október síðastliðinn eft­ir að hafa fallið niður af þriðju hæð á hót­eli í borginni Bu­enos Aires í Arg­entínu.

Fimm hafa verið ákærðir í tengslum við andlát breska tónlistarmannsins Liam Payne. Hann lést þann 16. október síðastliðinn eft­ir að hafa fallið niður af þriðju hæð á hót­eli í borginni Bu­enos Aires í Arg­entínu.

Gilda Martin, framkvæmdastjóri hótelsins CasaSur, Esteban Grassi, móttökustjóri þess, og Roger Nores, vinur Payne, voru öll ákærð fyrir manndráp af gáleysi, en þeir Braian Paiz og Ezequiel Pereyra, starfsmenn hótelsins, voru ákærðir fyrir að útvega Payne fíkniefni.

Í nóvember var greint frá því að þrír hefðu stöðu sakbornings í tengslum við andlát fyrrum One Direction-liðsmannsins.

Eit­ur­efna­skýrsla sýndi fram á að Payne hafði neytt áfeng­is, kókaíns og lyf­seðils­skylds þung­lynd­is­lyfs inn­an við 72 klukku­stund­um fyr­ir and­látið. Hinir grunuðu voru sakaðir um að hafa útvegað söngvaranum fíkniefni og að minnsta kosti einn þeirra fyrir að hafa yfirgefið Payne í annarlegu ástandi.

Payne var borinn til grafar þann 20. nóvember í Buck­ing­ham­skíri á Englandi. 

mbl.is