Flestir telja Kristrúnu hafa staðið sig vel

Alþingiskosningar 2024 | 30. desember 2024

Flestir telja Kristrúnu hafa staðið sig vel

Flestir telja Kristrúnu Frostadóttur, formann Samfylkingarinnar, hafa staðið sig vel á liðnu kjörtímabili ef marka má niðurstöður nýrrar könnunar Maskínu.

Flestir telja Kristrúnu hafa staðið sig vel

Alþingiskosningar 2024 | 30. desember 2024

Kristrún Frostadóttir, formaður Samfylkingarinnar (í miðið) horfir til Þorgerðar Katrínar …
Kristrún Frostadóttir, formaður Samfylkingarinnar (í miðið) horfir til Þorgerðar Katrínar Gunnarsdóttur, formanns Viðreisnar og Inga Sæland, formaður Flokks fólksins (lengst til hægri), brosir sínu breiðasta á blaðamannafundir þegar ný ríkisstjórn kynnti stjórnarsáttmála sinn. mbl.is/Eyþór

Flest­ir telja Kristrúnu Frosta­dótt­ur, formann Sam­fylk­ing­ar­inn­ar, hafa staðið sig vel á liðnu kjör­tíma­bili ef marka má niður­stöður nýrr­ar könn­un­ar Maskínu.

Flest­ir telja Kristrúnu Frosta­dótt­ur, formann Sam­fylk­ing­ar­inn­ar, hafa staðið sig vel á liðnu kjör­tíma­bili ef marka má niður­stöður nýrr­ar könn­un­ar Maskínu.

Fleiri telja Ingu Sæ­land, formann Flokks fólks­ins, hafa staðið sig vel en Þor­gerði Katrínu Gunn­ars­dótt­ur, formann Viðreisn­ar. Á móti kem­ur telja fleiri Ingu Sæ­land hafa staðið sig illa en Þor­gerði Katrínu.

Inga staðið sig verst en þó bet­ur en Þor­gerður

Þátt­tak­end­ur voru spurðir hversu vel eða illa þeim þóttu for­menn stjórn­mála­flokka hafa staðið sig á liðnu kjör­tíma­bili.

51,3% taldi Kristrúnu hafa staði sig vel en 17% illa, 34,7% taldi Ingu hafa staðið sig vel en 27,7% illa og 34,2% töldu Þor­gerði hafa staðið sig vel á liðnu kjör­tíma­bili en 25,1% illa.

Ánægja meiri en sam­an­lagt fylgi

Tölu­verð ánægja mæld­ist með rík­is­stjórn­ar­sam­starfið en 56% sögðust ánægð með það á meðan 21,1% sögðust óánægð með það. 22,9% sögðust vera í meðallagi ánægð eða óánægð með sam­starf flokk­anna þriggja.

Þannig mæl­ist ánægja með rík­is­stjórn­ar­sam­starfið meiri en sam­an­lagt fylgi þeirra í Alþing­is­kosn­ing­un­um en þar fékk Sam­fylk­ing­in 20,8%, Viðreisn 15,8% og Flokk­ur fólks­ins 13,8% og flokk­arn­ir þrír því sam­an­lagt 50,4%.

mbl.is