Að minnsta kosti tíu eru látnir og þrjátíu særðir eftir að bifreið var ekið inn í stóran hóp fólks í New Orleans í Bandaríkjunum.

Atvikið átti sér stað við Canal og Bourbon-stræti þar sem fólk var samankomið til þess að fagna áramótunum. Svæðið er þekkt sem franski hluti borgarinnar.
Í tilkynningu frá borgaryfirvöldum á X sagði að fjöldi fólks hefði látist í atvikinu og fólk hvatt til þess að koma sér af svæðinu.
Vitni sem CNN lýstu hryllingnum sem varð á áramótafögnuðinum.
„Ég sá bara vörubíll keyra á alla sem voru vinstra megin á Bourbon-stræti,“ sagði hinn 22 ára gamli Kevin Garcia.
„Lík lenti á mér,“ sagði hann og bætti við að hann hefði heyrt í byssuskotum.
Vitni sem ræddi við CBS News sagðist hafa séð vörubíl keyra á mannfjöldann á miklum hraða. Ökumaðurinn hafi síðan farið út úr bílnum og byrjað að skjóta úr byssu.