Lét barnunga systurdóttur sína snerta getnaðarlim

Kynferðisbrot | 3. janúar 2025

Lét barnunga systurdóttur sína snerta getnaðarlim

Karlmaður var dæmdur í átta mánaða skilorðsbundið fangelsi í Héraðsdómi Reykjaness fyrir kynferðislega áreitni gegn 7-8 ára gamalli systurdóttur sinni. Einnig var honum gert að greiða milljón kr. í miskabætur og 677 þúsund kr. í sakarkostnað.

Lét barnunga systurdóttur sína snerta getnaðarlim

Kynferðisbrot | 3. janúar 2025

Héraðsdómur Reykjaness.
Héraðsdómur Reykjaness. mbl.is/Hákon

Karl­maður var dæmd­ur í átta mánaða skil­orðsbundið fang­elsi í Héraðsdómi Reykja­ness fyr­ir kyn­ferðis­lega áreitni gegn 7-8 ára gam­alli syst­ur­dótt­ur sinni. Einnig var hon­um gert að greiða millj­ón kr. í miska­bæt­ur og 677 þúsund kr. í sak­ar­kostnað.

At­vikið sem um ræðir gerðist árið 2021. Er maður­inn sagður í dómi hafa snert læri stúlk­unn­ar og látið hana snerta ber­an getnaðarlim sinn.

Maður­inn játaði hátt­semi sína und­an­bragðalaust og féllst á bóta­skyldu auk þess að samþykkja þá fjár­hæð sem krafa var gerð um.

Maður­inn hafði til þessa hreint saka­vott­orð. Fram kem­ur að fulln­ustu refs­ing­ar verði frestað og mun hún falla niður að liðnum tveim­ur árum ef hann held­ur al­mennt skil­orð.

mbl.is