Stefanía aðstoðar Hönnu Katrínu

Alþingiskosningar 2024 | 3. janúar 2025

Stefanía aðstoðar Hönnu Katrínu

Hanna Katrín Friðriksson atvinnuvegaráðherra hefur ráðið Stefaníu Sigurðardóttur sem aðstoðarmann sinn.

Stefanía aðstoðar Hönnu Katrínu

Alþingiskosningar 2024 | 3. janúar 2025

Stefanía Sigurðardóttir.
Stefanía Sigurðardóttir. Ljósmynd/Stjórnarráðið

Hanna Katrín Friðriks­son at­vinnu­vegaráðherra hef­ur ráðið Stef­an­íu Sig­urðardótt­ur sem aðstoðarmann sinn.

Hanna Katrín Friðriks­son at­vinnu­vegaráðherra hef­ur ráðið Stef­an­íu Sig­urðardótt­ur sem aðstoðarmann sinn.

Stef­an­ía út­skrifaðist með BA-gráðu í list­rænni viðburðastjórn­un árið 2011 frá Rose Bru­ford Col­l­e­ge í Lund­ún­um. Þar var hún fyrst er­lendra nema í skól­an­um kos­in for­seti stúd­entaráðs skól­ans, að því er seg­ir í til­kynn­ingu.

Stef­an­ía hef­ur starfað sem fram­kvæmda­stjóri þing­flokks Viðreisn­ar en starfaði áður sem verk­efna­stjóri viðburða á markaðssviði Há­skól­ans í Reykja­vík.

Hún hef­ur einnig unnið við viðburðastjórn­un, markaðsmál og ferðaþjón­ustu. Hún var jafn­framt í kosn­inga­stjórn Viðreisn­ar í nýliðnum kosn­ing­um og í kosn­inga­stjórn Guðna Th. Jó­hann­es­son­ar, fyrr­ver­andi for­seta Íslands. Stef­an­ía hef­ur þegar tekið til starfa.

mbl.is